Frsm. minni hl. menntmn. (Sigrún Helgadóttir) :
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. frá minni hl. menntmn. sem ég reyndar stend ein að. Kvennalistinn styður heils hugar að gert sé átak í launamálum listamanna og fagnar því fram komnu frv. um listamannalaun. Eins og fram hefur komið gerir frv. ráð fyrir þremur sérgreindum sjóðum listamanna, rithöfunda, myndlistarmanna og tónskálda. Í fjórða sjóðinn, Listasjóð, eiga allir listamenn að geta sótt og sá sjóður á einnig að veita framlög til listamanna sem notið hafa listamannalauna undanfarin ár og náð hafa 60 ára aldri.
Umsagnir um frv. eru flestar mjög jákvæðar nema leikhúslistafólk vill ekki una því að þeim er ekki ætlaður sérgreindur launasjóður. Í brtt. meiri hl. er gert ráð fyrir að a.m.k. helmingur starfslauna úr Listasjóði skuli veittur leikhúslistafólki. Sýnist eðlilegra að stíga skrefið til fulls og stofna sérstakan launasjóð leikhúslistafólks. Í Félagi ísl. leikara er hátt á þriðja hundrað manns, leikarar, söngvarar, dansarar og leikmynda - og búningahönnuðir. Aðeins um fjórðungur þessa fólks er fastráðinn við leiklistarstofnanir og aðeins tveir af 68 í Félagi leikstjóra. Atvinnu - og öryggisleysi er síst minna innan þessa hóps listamanna en þeirra sem frv. ætlar sérgreinda launasjóði, en margt það fólk vinnur t.d. við kennslu í listaskólum. Flestir eru sammála um að menningin og þá ekki síst tungumálið geri Íslendinga að þjóð og frv. gerir ráð fyrir að ritlistamenn fái sem svarar 360 mánaðarlaunum en listamenn hins talaða orðs eiga skv. frv. og brtt. meiri hl. nefndarinnar að sætta sig við að skipta 240 mánaðarlaunum Listasjóðs með öllum öðrum listamönnum.
Brtt. Kvennalistans gerir ráð fyrir að helmingur Listasjóðs, 120 mánaðarlaun, verði notaður til að stofna launasjóð leikhúslistafólks. Brtt. gerir því ekki ráð fyrir meiri fjárútlátum en tillaga meiri hl. heldur miðar að því að mæta þeirri ósk leikhúslistafólks að listgrein þeirra sé ekki sett skör lægra en aðrar listgreinar sem fá sína sérgreindu sjóði. Brtt. sem hér eru lagðar til eru fyrst og fremst við 3. gr., að þar komi inn Launasjóður leikhúslistafólks og bætist við þá fjóra sjóði sem tilgreindir eru í greininni þannig að þessir sérgreindu sjóðir verði fjórir og nái til allra stærstu listgreinanna. Það verður að segjast að ef það er ekki talið betra að hafa sérgreindan sjóð af hverju er þá ekki bara einn sjóður og allir sækja í hann?
2., 3. og 4. brtt. miðast allar við það að þessi fyrsta brtt. verði samþykkt. Það eru þá breytingar á frv. sem væru nauðsynlegar í kjölfar þessarar breytingar á 3. gr. Þá kæmi inn ný gr. sem yrði 10. gr. og væri samhljóða 7. -- 9. gr. frv. þar sem kveðið væri á um stærð og úthlutunarnefnd Launasjóðs leikhúslistafólks. Við 10. gr. gerir brtt. ráð fyrir að Listasjóður lækkaði sem næmi þessari upphæð sem færi í Launasjóð leikhúslistafólks. Og við 13. gr. er þá gert ráð fyrir því að menntmrh. hafi samband við Leiklistarsamband Íslands við gerð reglna alveg eins og við
hina.
Í viðbót við þetta nál. vil ég gjarnan bæta nokkrum orðum. Mér varð stundum hugsað til þess þegar við vorum að ræða þetta mál, og ég hugsa að við eigum mörg sameiginlega reynslu í því, að hafa alist upp við það að hlusta á útvarpsleikrit á laugardagskvöldum,
þar sem fjölskyldan sat saman og hlustaði með andakt og það var hlegið og grátið eða maður æsti sig eftir efni leikritsins, en um leið smaug kynngimagnað orðfæri og fagur framburður hæfra leikara inn um hlustir. En útvarpsleikrit eru ekki lengur fastir samverutímar fjölskyldunnar. Þeir samverutímar eru nú helst fyrir framan sjónvarpið en frá því heyrist fyrst og fremst enska. Á íslensku er fátt eitt annað en síbyljandi umræðuþættir í útvarpi og fréttir og auglýsingar sem oft eru varla samfellt mál heldur stuttar klisjur og slagorð og harla misvel flutt og jafnvel sumt á afleitu máli.
Ég vil gerast örlítið persónuleg og nefna það að í fyrra bjó ég í Bandaríkjunum. Dóttir mín sem þá var átta ára sótti þar skóla og í bekkinn hennar komu tveir ungir leikarar. Þetta urðu einhverjar skemmtilegustu stundir dóttur minnar og félaga hennar í bekknum. Þessir ungu leikarar höfðu fengið styrk til þriggja ára til að koma með verkefni inn í skólana í þessari borg og þeir byrjuðu á því að fara inn í átta ára bekki. Þeirra styrkur var til þess að kenna krökkunum brot af sinni list. Þeir byrjuðu í átta ára bekkjunum og áttu svo að fylgja bekknum í þrjú ár. Og í fyrra lærðu börnin ýmislegt um það hvernig saga er uppbyggð og sögð og túlkuð. Hvert barnanna lærði utan að stutta sögu sem þau æfðu aftur og aftur að flytja og að lokum voru sögurnar fluttar frammi fyrir áhugasömum foreldrum. Reyndar veit ég ekki hvað þessir ungu leikarar kenna fyrrverandi bekkjarfélögum dóttur minnar í vetur eða næsta vetur, en ég veit hins vegar að í fyrra lærði hún heilmikið og skynjaði mikilvægi þess að segja vel frá, mikilvægi talaðs máls. Ég, og þá ekki síður hún, hefðum gjarnan viljað að hún hefði fengið að halda áfram sambærilegu námi og þjálfun á eigin móðurmáli. Ég get ekki varist því að hugsa sem svo að söguþjóðin heldur ekki áfram að vera söguþjóð ef enginn kann lengur að segja sögu, ekki bara skrifa sögu heldur líka segja hana og túlka hana. Sú er list leikhúslistafólks og þeirra sem ég hér reyni að tala fyrir.
Ég efa ekki að margir hinna 300 leiklistarmanna sem hér ganga um án vinnu á sínu sviði búa yfir mörgum frumlegum hugmyndum að leikverkum eða verkefnum sambærilegum þessum sem ég minntist hér á. Hins vegar eru þær fáar, matarholurnar, sem hægt er að leita í til styrktar slíku frumkvæði. Ég er reyndar ekki þingvön kona og ég verð að viðurkenna að ég skil ekki hvers vegna ekki má ganga að samhljóða óskum alls leikhúslistafólks. Allt leikhúslistafólk sem lét í ljós álit á þessu frv. gagnrýndi frv. fyrir það að vera ekki með sérgreindan sjóð leikhúslistafólks. Það hefur ekki nein viðbótarútgjöld í för með sér heldur aðeins viðurkenningu á því að þeirra list er ekki síðri en hinna.
Ég tel að ef hægt væri að stofna sérstakan launasjóð fyrir leikhúslistafólk, þá væri það viðurkenning á því að þetta fólk er ekki síður listafólk heldur en rithöfundar, tónskáld og myndlistarmenn, að sköpun leikverks sé ekki síður mikilvæg en sköpun ritverks, tónverks eða myndverks.