Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason) :
Virðulegur forseti. Eins og reyndar kom fram í svari mínu áðan hefur ráðuneytið í sjálfu sér ekki mikið með það að gera hvernig þessi gjöld eru útreiknuð. Það sem við höfum reynt að gera til að samræmis sé gætt er að leggja áherslu á að gjöld þessi má ekki heimta eða líta á sem skattheimtu heldur eiga þau fyrst og fremst að standa undir lögboðnu og eðlilegu eftirliti. Þau eiga því að byggjast á kostnaði þeim sem sveitarfélögin hafa af þessari innheimtu.
Auðvitað getum við ábyggilega verið sammála um það, hv. fyrirspyrjandi og ég og vafalaust þingmenn allir upp til hópa, að það sé bæði óeðlilegt og reyndar slæmt að það skuli vera mikill mismunur á. En ef til dæmis Reykjavíkurborg eða heilbrigðiseftirlitið hér telur ekki þörf á því að innheimta þetta gjald og þá trúlega fyrir það að kostnaður við það er þá greiddur með einhverjum öðrum tekjum sveitarfélagsins, ég get ekki séð aðrar forsendur fyrir því, en ýmis önnur minni sveitarfélög, sem ekki hafa eins sterka og víðtæka tekjustofna, verða að innheimta sérstakt gjald fyrir kostnað af eftirlitinu, þá ræður auðvitað ráðuneytið lítt eða alls ekki yfir því þó við getum verið sammála um að þetta sé alls ekki gott.
Varðandi mismun milli einstakra fyrirtækja er auðvitað það sama sem gildir, að það er geta sveitarfélaganna til þess að veita atvinnufyrirtækjum á sínu svæði þjónustu án þess að innheimta af því þau gjöld sem eftirlitið kostar.
Þannig að málið er því miður ekki mikið í höndum stjórnvalda að þessu leyti. Það er mál sveitarfélaganna og heilbrigðiseftirlits þeirra lögum samkvæmt og því ekki gott fyrir okkur að ráða bót á nema menn vilji taka þetta upp með lagabreytingu og fela það stjórnvöldum, þ.e. ráðuneyti og ríkisvaldinu, að ráða yfir þessum þætti meira en er. En venjulega tala menn á hinn veginn, að það eigi að fela mönnum sem mest vald og sjálfsforræði heima í héraði og í aðalatriðum er ég sammála þeirri skoðun.