Heildarkostnaður Blönduvirkjunar
Fimmtudaginn 21. febrúar 1991


     Fyrirspyrjandi (Stefán Valgeirsson) :
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það var ekki fullyrðing mín um 29 mill heldur sagði ég að það hefði komið fram í fjölmiðlum og þess vegna vildi ég fá það svar hér og nú hvað væri rétt í því efni. Og það er ánægjulegt ef það reynist rétt sem hæstv. ráðherra sagði. En það er allt annað heldur en manni er tjáð annars staðar.
    Ég er ánægður yfir þessum svörum að því leyti að þarna er um 13 milljarða að ræða sem heildarkostnaðurinn er og ég vona að þarna sé allt talið, bætur og allt annað en línulagnir. Ég vona að það sé rétt skilið.
    En það er nauðsynlegt að fá þessar upplýsingar hér og nú vegna þeirrar stöðu sem öll þessi mál eru í.