Kostnaðaráætlun Fljótsdalsvirkjunar
Fimmtudaginn 21. febrúar 1991


     Fyrirspyrjandi (Stefán Valgeirsson) :
    Virðulegi forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. á þskj. 621 til hæstv. iðnrh. um kostnaðaráætlun Fljótsdalsvirkjunar og háspennulínu til Keilisness. Fyrirspurnin hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:
 ,,1. Hver er áætlaður byggingarkostnaður á Fljótsdalsvirkjun miðað við að bygging hefjist á þessu ári?
    2. Hver er áætlaður kostnaður á byggingu háspennulínu ásamt spennuvirkjum og öðrum tilkostnaði frá Fljótsdalsvirkjun til Keilisness á Reykjanesi?``
    Eins og ég gat um í fyrri fyrirspurn minni, þá var umræðan um þessar virkjanir, Blönduvirkjun annars vegar og Fljótsdalsvirkjun hins vegar, á þann veg að Fljótsdalsvirkjun mundi verða dálítið dýrari. Síðan heyrði ég það frá mönnum austur á Héraði sem voru á fundi á Egilsstöðum, þar sem Landsvirkjun var að kynna virkjunaráætlunina og allt það um Fljótsdalsvirkjun, að þar hafi verið nefndar mjög háar tölur, svo háar tölur að ég treysti mér ekki einu sini að fara með þær, um kostnaðinn við háspennulínuna ásamt spennivirkjum og öðrum tilkostnaði. Þess vegna er þessi fyrirspurn komin fram því að í ljósi þeirra upplýsinga sem kunna að liggja fyrir áður en áætlanir eru ákveðnar er nauðsynlegt að þetta komi fram.