Fyrirspyrjandi (Stefán Valgeirsson) :
Virðulegi forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 622 að koma fram með fsp. til hæstv. iðnrh. um athugun á vetnisframleiðslu í samstarfi við Þjóðverja. Með leyfi forseta hljóðar fsp. þannig:
,,1. Hefur iðnrh. falið Háskóla Íslands að halda áfram athugun á hagkvæmni vetnisframleiðslu hér á landi í samstarfi við Þjóðverja?
2. Hafi það ekki verið gert, hefur öðrum þá verið falin athugunin? Og þá hverjum?``