Afdrif skýrslu Byggðastofnunar um Vestfirði
Fimmtudaginn 21. febrúar 1991


     Fyrirspyrjandi (Ólafur Kristjánsson) :
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir þau svör sem hann flytur hér fyrir hönd hæstv. forsrh. og fagna því að það skuli vel eiga að taka á þessari skýrslu sem er hér til umræðu. Vissulega væri hægt að hafa hér mjög langt mál um stöðu byggðar á Vestfjörðum en því miður hef ég aðeins tvær mínútur til umfjöllunar svo það verður ekki gert. En ég gat ekki annað en vakið athygli á því að það er mjög aðkallandi að hin ýmsu fagráðuneyti fari að vinna eftir þeirri tillögugerð sem lögð er til í þessari skýrslu. Ég vil þó ekki vanþakka það sem þar hefur verið gert og nefni hjá samgrn. um jarðgangagerð og eins sjútvrn., eins og hér var um getið. En vissulega er margt sem eftir er. Ég hygg, ef það er rétt haft eftir hæstv. forsrh. á blaðamannafundi í gær þar sem hann segir, með leyfi forseta: ,,Það er ekkert vit í því að vera að bora göt í fjöll til þess eins að síðasti íbúinn geti farið um þau þegar hann flytur á brott.`` Þetta mun hæstv. ráðherra hafa átt að segja á blaðamannafundi í gær.
    Ég vona að hann meini annað en úr þessu má lesa og hefði gjarnan viljað hafa hann hér í þingsölum til þess að eiga um þetta orðaskipti við hann. En einmitt til þess að forðast slíkt þá þarf að vinna alldyggilega og rækilega í hinum ýmsu fagráðuneytum að því að ná fram þeim markmiðum sem sett voru fram í þessari skýrslu og hygg ég að ef ráðuneytin í samráði við Vestfirðinga taka saman höndum, þá verði bjartara í byggðamálum á Vestfjörðum.