Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Hæstv. forsrh. er orðvar maður og vill hafa fyrirvara í sínu máli. Hann hefur komið því á framfæri að ekki sé skynsamlegt að bora göt í gegnum fjöll til þess að seinasti íbúi viðkomandi byggðar fari þar í gegn og yfirgefi byggðarlagið. Ég er honum sammála hvað þetta snertir. Það er ekkert vit í slíku. Það stendur ekki til, hvergi á Íslandi mér vitanlega, að ráðast í slíka jarðgangagerð að bora göt í fjöll til þess að síðasti íbúinn flytji þar í gegn. Hafi blaðamenn komist að þeirri niðurstöðu að svo sé er það á misskilningi byggt og verður að segjast eins og er að þeim væri þarft að ferðast ögn um okkar land.