Danfríður Skarphéðinsdóttir :
Virðulegur forseti. Ég fagna því að okkur gefst tækifæri til að ræða þessa skýrslu um samstarf Norðurlanda svo og aðrar þær skýrslur um alþjóðleg samskipti sem eru á dagskrá sameinaðs þings í dag.
Ég tel það samstarf sem fram fer á vettvangi Norðurlandaráðs vera afar mikilvægt fyrir Íslendinga og auðvitað hinar þjóðirnar allar líka, en tala þó sérstaklega um Ísland vegna þess að ég tel að þjóð sem byggir eyland eins og við gerum hafi mikla þörf fyrir að hafa sem mest og fjölbreytilegust tengsl í allar áttir.
Í þessari skýrslu og í máli hv. þm. Ólafs G. Einarssonar, formanns Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, kemur fram að viðfangsefnin á sviði Norðurlandaráðs eru býsna mörg og fjölbreytileg og er það vel. En það kom einnig fram í máli hv. þm. að starfsvettvangur Norðurlandaráðs hefur víkkað nokkuð nú hin seinni ár, bæði með auknum samskiptum við Eystrasaltsríkin og Evrópuþingið. Það er eðlilegt og nauðsynlegt í þeirri nýju Evrópu sem við okkur blasir og sýnir að Norðurlandaráð er ekki steinrunnin stofnun, lokuð gagnvart umhverfi sínu.
Eins og fram kom í máli hv. þm. Ólafs G. Einarssonar eru ekki allir sammála um þær hugmyndir sem nú eru uppi um skipulagsmál Norðurlandaráðs. Vilja Íslendingar m.a. tryggja sér fulla aðild að stjórnunarstörfum þar eins og verið hefur hingað til. Það tel ég vera eðlilegt viðhorf og langaði til í framhaldi af þeim hugleiðingum formanns Íslandsdeildar Norðurlandaráðs að benda á að eins og fyrirkomulagið er nú hjá okkur hér á hv. Alþingi er ekki tryggt að allir flokkar sem eiga fulltrúa á Alþingi eigi aðild að Norðurlandaráði vegna þeirra reglna sem í gildi eru. Þetta tel ég vera miður en met það þó mikils að t.d. þingflokkur Kvennalistans sem ekki á fulltrúa í Norðurlandaráði skuli með skýrslu sem þessari fá tækifæri til þess að setja sig inn í það mikla starf sem þarna fer fram. En auðvitað væri allra best að eiga beina aðild að þessu starfi.
Ég ætla ekki að víkja að einstökum þáttum eða því sem hér er gerð grein fyrir úr nefndarstarfi Norðurlandaráðs en mig langar til þess að fagna sérstaklega einu verkefni sem norræna ráðherranefndin styrkir. Það er verkefni sem kallað er NORDJOBB, sem felst því að íslensk ungmenni og norræn ungmenni geta sótt um sumarvinnu í nágrannalöndunum. Það kemur fram í skýrslunni að 163 íslenskir unglingar fóru til annarra norrænna landa á síðasta ári og 87 unglingar komu hingað til lands. Ég tel þetta mjög mikilvægt vegna þess að þetta er ein greiðasta leiðin til þess að auka og efla kynni á milli ungs fólks á Norðurlöndunum. Það fær tækifæri til þess að kynna sér þjóðfélagsaðstæður og atvinnuhætti í öðrum löndum. Þarna tel ég að fari fram mjög frjótt og skapandi starf og hef reyndar kynnt mér það nokkuð og veit að það er ýmislegt gert til að kynna löndin, sögu þeirra og merkisstaði fyrir þeim ungmennum sem fara í vinnu á vegum NORDJOBB.
Í öðru norrænu ráði, sem er reyndar hér með skýrslu sína á eftir, Vestnorræna þingmannaráðinu, hafa oft verið samþykktar ályktanir og tillögur um að koma á skiptum milli skólanemenda og á síðasta sumri var samþykkt tillaga um að lagt yrði fé til þess að útbúa námsefni fyrir skólanemendur til kynningar á þessum þremur löndum. Það gefst tækifæri til að ræða það hér á eftir undir öðrum dagskrárlið en ég tel að þarna sé einmitt verið að byrja á réttum enda með því að víkka sjóndeildarhring ungs fólks.
Ég rak augun í það hér í skýrslunni að það hafði gerst á árinu 1989 að danskur stúdent, búsettur á Íslandi, hafði sótt um lán til Lánasjóðs ísl. námsmanna og hafði verið leitað til umboðsmanns Alþingis um álit á rétti hans til þess að fá námslán úr íslenska lánakerfinu. Sýnist mér að niðurstaðan í því máli hafi verið sú að fela hæstv. samstarfsráðherra Júlíusi Sólnes að kanna hvort unnt væri að samræma reglur norrænu námsmannasjóðanna innbyrðis. Vildi ég í tilefni af þessari umræðu, því ég veit að hann mælir fyrir sinni skýrslu á eftir, inna hann eftir því hvað hafi verið gert á þeim vettvangi. En að öðru leyti vil ég enn og aftur þakka fyrir þessa ágætu skýrslu. Hún er okkur sem ekki eigum sæti í Norðurlandaráði sérstakt fagnaðarefni.