Danfríður Skarphéðinsdóttir :
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því um leið og ég þakka fyrir skýrsluna að taka undir síðustu orð hv. 3. þm. Norðurl. e. Sú skýrsla, sem liggur hér frammi frá Vestnorræna þingmannaráðinu fyrir starfið á árinu 1990 og tillögurnar sem fylgja, kom að mörgu leyti kunnuglega fyrir sjónir þeim sem hafa starfað innan ráðsins. Hér segir, með leyfi forseta, í þriðju greinaskilum skýrslunnar:
,,Aðalefni fundarins að þessu sinni var: Hvar stöndum við; hvert ætlum við?``
Þegar ég fór á minn fyrsta fund í þessu ráði síðsumars 1987 þá var þetta einnig sú spurning sem brann á vörum flestra sem fundinn sóttu. Í framhaldi af umræðum á þeim fundi, sem haldinn var í Færeyjum, var ákveðið að sendinefndir þjóðanna þriggja skyldu reyna að þrýsta enn frekar á ríkisstjórnir eða landsstjórnir landa sinna með því að bera tillögurnar inn í þjóðþingin í formi tillagna og hefur það verið gert æ síðan. Eftir sem áður virðist okkur ekki hafa miðað langt við að fá þessar tillögur framkvæmdar þó flestir geti eflaust tekið undir efni þeirra.
Það er nú svo með þessar þrjár þjóðir að þær eiga margt sameiginlegt. Þetta eru eylönd, misstór reyndar, og allar þjóðirnar þrjár búa við einangrun og einhæft atvinnulíf. Og það er kannski ekki síst með tilliti til þess síðastnefnda, einhæfs atvinnulífs, sem þær hafa getað sameinast svo mjög í umhverfismálum eins og raun hefur orðið á í þessu samstarfi.
Ég vil víkja sérstaklega að tillögu sem samþykkt var einróma í fyrsta skipti á Grænlandi sumarið 1988 á fundi ráðsins, og það var fyrir forgöngu hv. 3. þm. Norðurl. e. Þar var samþykkt sameiginleg ályktun fulltrúa landanna þriggja um að beina tilmælum til ríkisstjórna og landsstjórna landanna að knýja á stórveldin um að þau setjist að samningaborði vegna umferðar kjarnorkuskipaflotans sem vitað er að er á ferðinni í höfunum hér í kringum okkur. Það sem í mínum huga var merkilegt við þessa tillögu --- það var svo sem ekkert skrýtið að fulltrúar á þessum fundi sem eiga allt sitt undir því að líf haldist í sjónum gætu sameinast um þetta, en ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem fulltrúar allra stjórnmálaflokka sameinast um slíka tillögu. Hún hefur verið ítrekuð síðan --- og nú hefði verið gott að hafa hér einhverja hæstv. ráðherra til að gefa upplýsingar um hver hafi orðið viðbrögð þeirra við þessum ítrekuðu tilmælum. Eins og sjá má á þeim ályktunartillögum, sem liggja fyrir hér á þskj. 663, þá koma þar fram margar merkilegar tillögur bæði á sviði menningarsamskipta og einnig viðskipta, og þá ekki síst gagnvart Evrópubandalaginu. Og þar sem ég minnist á Evrópubandalagið þá vil ég minna á að það var e.t.v. dæmigert fyrir þessar þrjár smáþjóðir að á ári samrunans mikla í Evrópu höfðu fulltrúar í Vestnorræna þingmannaráðinu lagt fram tillögu um að efnt yrði til Vestnorræns árs þar sem vakin yrði sérstök athygli á málefnum þessara smáþjóða. Ég tel mjög mikilvægt að þessum tillögum verði hrint í framkvæmd. Mér skilst að undirbúningur sé þegar
hafinn bæði í Færeyjum og Grænlandi, ég verð væntanlega leiðrétt ef ég fer ekki rétt með, en alla vega er mér kunnugt um að Grænlendingar hafa lagt fram fjármuni nú þegar til þess að undirbúa þetta og ég hygg að svo sé einnig í Færeyjum, og þá væri aumt ef Íslendingar létu sitt eftir liggja.
Ég vil mega vænta þess í framhaldi af þessum umræðum hér í dag og þeim skýrslum sem fyrir liggja og þá þeirri skýrslu sem við fjöllum um núna, að fulltrúar í Vestnorræna þingmannaráðinu þurfi ekki á næsta ári að standa hér við sama tilefni og brýna ríkisstjórnir sínar til framkvæmda. Ég vona að spurningunni hvar við stöndum og hvert við ætlum hafi þá þegar verið svarað. Ég tel mjög mikilvægt að styðja þetta samstarf. Eins og fram kom við flutning síðustu skýrslu hæstv. samstarfsráðherra, þá megum við ekki gleyma vestrinu þó austrið sé ferskt og nýtt í hugum Norðurlandaþjóðanna um þessar mundir.
Það hefur verið minnst á skrifstofu til þess að vinna að málefnum landanna þriggja. Ég vil ítreka það sem ég sagði áðan, við verðum að byrja á að framkvæma tillögurnar til þess að skrifstofa sú hafi verkefni að vinna.