Sigrún Helgadóttir :
Virðulegi forseti. Ég vil sérstaklega þakka þessa skýrslu umhvrh. um undirbúning að löggjöf um stjórnsýslu á miðhálendi Íslands og þá vinnu sem liggur að baki henni.
Ég verð nú samt að segja að ég hefði gjarnan viljað sjá slíka skýrslu komna út fyrir löngu síðan, a.m.k. fyrir 10 árum ef ekki 20. Þá hefði e.t.v. verið hægt að koma í veg fyrir öll þau spjöll sem unnin hafa verið á þessum verðmæta hluta landsins. Það er enn þá allt of ríkt í okkur að líta á þetta sem verðlaust land. En þarna hafa verið unnin mikil spjöll auk allrar þeirrar mannvirkjagerðar sem þar hefur átt sér stað, oft því miður án nægilegrar aðgæslu og stjórnunar.
Á hálendinu hafa orðið miklar breytingar. Það þekki ég vel úr eigin starfi. Fyrir 15 árum síðan, þegar fólk fór að koma til landsins á miklum torfærubílum, urðu umskipti í umgengni, eða akstri öllu heldur, á landinu og hrikaleg sár sem ýmsir stórir og kraftmiklar bílar hafa skilið eftir á hálendi Íslands. Þarna er land, og þá sérstaklega lífríki, mjög viðkvæmt, stutt sumar og stuttur vaxtartími gróðurs og landið því viðkvæmt.
Önnur veruleg breyting hefur orðið og það er miklu styttra síðan hún varð, þ.e. þegar farið var að flytja hús inn á hálendið eins og hæstv. ráðherra minntist á. Kunnugir menn telja að núna séu á hálendi landsins um 500 kofar og hús og flest því miður án nokkurs leyfis og án skipulags. Ástæða þessa alls er auðvitað sú að ráðuneytin íslensku voru eiginlega eins og forfeður okkar og mæður sem komu til landsins á sínum tíma. Við vitum að karlar fóru eldi um land og konur með kvígur, en það var enginn sem fór með eldi eða fór með kvígur um þessar auðnir og land sem fólk taldi að væri einskis virði af því að það var ekki til neinna nota til landbúnaðar, ekki nema þá
til beitar og það var reyndar mun seinna. Hins vegar gerum við okkur nú grein fyrir því hversu verðmætt þetta land okkar er. Það er verðmætt einmitt vegna þeirrar sérstöðu sem þarna er og það er ekki aðeins verðmætt í formi peninga sem erlendir ferðamenn skilja hérna eftir heldur er það líka verðmætt fyrir okkur sjálf til lífsfyllingar. Því það er söguleg staðreynd að fólk hefur þörf fyrir náttúrlegt umhverfi. Ég ætla ekki að gera það þó svo að ég gæti það ágætlega, haldið hér langan fyrirlestur um það hvernig hægt er að rekja sig í gegnum söguna og sjá að í kjölfar iðnbyltingar á sínum tíma og borgarmyndunar, þá kom upp mjög sterk barátta fólks fyrir því að fá tækifæri til að fara um land og njóta landsins. Í lagamáli er réttur fólks til þessa venjulega kallaður almannaréttur og því miður er almannaréttur fólks mun minni hér heldur en hann er víða erlendis.
Vegna þessara orða um almannarétt, þá kannski vakti það nokkra furðu þegar ég leit yfir þann lista fólks sem hafði verið í nefndinni sem samdi skýrsluna sem hér er til umræðu að þar er ekki fulltrúi Náttúruverndarráðs, enda þótt hlutverk nefndarinnar hafi
verið að tryggja verndun þeirrar sérkennilegu og einstæðu náttúru sem einkennir hálendi Íslands, en til skamms tíma hefur það kannski helst verið Náttúruverndarráð sem hefur reynt að sinna málefnum hálendisins án þess þó að hafa nægilega sterka lagastoð fyrir því vegna þess, eins og ég nefndi áðan, að það var eiginlega eins og það væri ekkert ráðuneyti sem vildi skipta sér af þessum málum fyrr en umhverfisráðuneytið var stofnað og það er sannarlega vel að þetta skyldi verða eitt af fyrstu málum sem umhverfisráðuneytið vildi taka að sér og tók að sér.
Ég tek mjög undir það, eins og ljóst má vera af orðum mínum, að það er mjög brýnt að lögbinda stjórnsýslu á hálendi Íslands og ég er mjög sammála því og mjög sátt við þá niðurstöðu sem hér er að horft sé á hálendið sem eina heild. Ég vissi um þá vinnu sem hafði verið unnin af Skipulagi ríkisins, sem hæstv. ráðherra minntist á, þar sem var farið að leggja drög að því að skipta hálendinu upp á milli sveitarfélaga, þeirra 50 sveitarfélaga sem land eiga að miðhálendinu. Ég er mjög fegin að sú stefna skyldi ekki verða ofan á, bæði vegna þess að auðvitað yrði það erfitt fyrir þessi litlu sveitarfélög að vinna nægilega vel að þeim verkefnum sem nauðsynlegt er að vinna hvert á sínu svæði, eins vegna þess að hætt er við að þá yrðu reglur og sú vinna sem framkvæmd yrði mjög mismunandi frá einu sveitarfélagi til annars, gengi út frá allt öðrum forsendum í einu sveitarfélaginu en öðru. Ég vil líka leggja áherslu á það að miðhálendið er allri þjóðinni dýrmætt, ekki síður höfuðborgarsvæðinu heldur en þeim sveitarfélögum sem eiga land að miðhálendinu. Þess vegna verður að gæta þess að öll þjóðin hafi sama rétt til þess að njóta hálendisins og auðvitað á þá öll þjóðin líka að hafa skyldum að gegna í varðveislu þess. Því er eðlilegt að líta á þetta sem eina heild og um þetta gildi sérstök lög, það verði ekki einstök sveitarfélög sem þarna skipti landinu á milli sín.
Þess vegna lýsi ég aftur yfir að það er ánægjulegt að sjá að þarna hefur verið reynt að draga línu sem gerir tilraun til að afmarka miðhálendið. Þetta hefur löngum verið mikið deilumál. Auðvitað er kortið sem fylgir þessari skýrslu of smátt til þess að hægt sé að meta nákvæmlega um mörkin, en þetta lítur allt ágætlega út svona í þessum mælikvarða a.m.k. Ég tel það mjög eðlilegt að miða við heimalönd eins og þarna var gert.
Í framhaldi af því að þessi lína hefur verið dregin er minnst á það í skýrslunni að línan verði auglýst og að það verði nefnd sem Hæstiréttur tilnefnir sem fer yfir athugasemdir sem gerðar verða við þessa línu. Ég vil koma þeirri athugasemd á framfæri eða þeim tilmælum að þegar farið verður yfir þær athugasemdir þá verði ekki aðeins horft á peningalegan landnýtingarrétt heldur einnig hinn gleðigefandi almannarétt fólks, þegar lagt er mat á þær athugasemdir sem fram koma.
Ég tel einnig að það hafi verið hyggilegt og rétt að byrja á skipulags - og byggingarmálum, en ég vil þó leggja áherslu á að þar verði ekki staðar numið og
fagna því að hæstv. ráðherra lýsti því hér yfir að áfram verði haldið á þessari braut. Ég veit mætavel að það er ekki hægt að friðlýsa miðhálendið sem þjóðgarð, hvorki samkvæmt íslenskum lögum né alþjóðalögum, reglum IUCN um þjóðgarða, fyrst og fremst vegna þess að landið er ekki í ríkiseign. Hins vegar legg ég aftur á það áherslu að þarna verði haldið áfram. Það má benda á að þó það sé ekki hægt að friðlýsa sem þjóðgarð, þá má hugsa sér að svæðið verði verndað og friðlýst á einhvern hátt sem eitthvað annað. Á síðasta náttúruverndarþingi var samþykkt tillaga um að miðhálendið yrði friðlýst sem óbyggt víðerni. Þannig gæti það orðið komandi kynslóðum, bæði innlendum og erlendum, til lífsfyllingar.
Og vegna þeirrar utandagskrárumræðu sem varð hér áðan, þá er kannski við hæfi að nefna að svæði eins og miðhálendið okkar er fólki til lífsfyllingar, og ekki aðeins hinu heilbrigða fólki, heldur þekki ég vel til þess að sums staðar erlendis er sérstaklega farið með afbrotamenn inn á óbyggð svæði þeim til geðhjálpar.
Þarna eigum við mjög verðmætt land sem er verðmætt vegna sérstöðu, vegna þess hvað það eru fáir sem eiga sambærilegt land og vegna þess að land sem okkar miðhálendi er ekki síður nauðsynlegt heldur en ýmiss konar annað land og önnur náttúruauðæfi sem við tölum oftar um að þurfi að vernda.