Rannsókn kjörbréfa
Mánudaginn 25. febrúar 1991


     Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson) :
    Virðulegi forseti. Kjörbréfanefnd hefur tekið fyrir eitt erindi, kjörbréf Guðnýjar Guðbjörnsdóttur, sem hlaut kosningu sem 5. varamaður Samtaka um kvennalista í Reykjavík, en hún taki sæti Þórhildar Þorleifsdóttur, 12. þm. Reykv.
    1., 2. og 3. varamaður Kvennalistans hafa ekki tök á þingsetu nú og því kemur til að 5. varamaður Samtaka um kvennalista í Reykjavík taki sæti í stað Þórhildar Þorleifsdóttur.
    Kjörbréfanefnd sér ekkert athugavert við þetta kjörbréf og leggur til að það verði samþykkt.