Varamenn taka þingsæti
Mánudaginn 25. febrúar 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Borist hafa eftirfarandi bréf:
    Forseti Nd. hefur skrifað mér á þessa leið:
    ,,Hreggviður Jónsson, 11. þm. Reykn., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að varamaður minn, Kolbrún Jónsdóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Árni Gunnarsson
,
forseti Nd.``


    Þá hefur borist annað bréf:
    ,,Sighvatur Björgvinsson, 5. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþfl. í Vestfjarðakjördæmi, Björn Gíslason, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Þá hefur borist hið þriðja bréf:
    ,,Steingrímur Hermannsson forsrh. hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég verð erlendis næstu daga í opinberum erindum leyfi ég mér að óska eftir því að 1. varamaður Framsfl. í Reykjaneskjördæmi, Níels Árni Lund, taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Þau Kolbrún Jónsdóttir, Björn Gíslason og Níels Árni Lund hafa öll tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð þau velkomin til starfa.