Kristinn Pétursson :
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir að taka vel í málaleitan mína um að fá hér umræður utan dagskrár vegna leka á trúnaðarskjölum úr forsrn. Það er að mínu mati mjög alvarlegur atburður, sem átti sér stað, að trúnaðarskjöl láku sl. föstudag úr sjálfu forsrn. Skjöl merkt sem trúnaðarmál voru send á póstfaxi til svæðisútvarps Austurlands.
Flestum er kunnugt að miklir erfiðleikar hafa steðjað að atvinnulífi á Seyðisfirði. Þar hefur mjög lítil fiskvinna farið fram í hálft annað ár. Núna þegar nýlega hefur verið stofnað nýtt fyrirtæki, sem hefur hafið rekstur, þá eru málefni þessa fyrirtækis allt í einu sett í fjölmiðla á mjög svo óviðurkvæmilegan hátt og vægast sagt óheppilegt að neikvæð fjölmiðlaumræða skuli fara fram með því að forsrn. leki merktum trúnaðarskjölum í fjölmiðla. Þetta nýstofnaða fyrirtæki hefur uppi áform um að treysta rekstur sinn með ákveðnum áformum og erindi vegna þess lágu fyrir hæstv. ríkisstjórn og voru þar til umfjöllunar. Forsvarsmenn fyrirtækisins og þingmenn Austurlandskjördæmis biðu eftir afgreiðslu þessa máls frá hæstv. ríkisstjórn og Byggðastofnun hafði tekið saman trúnaðarskýrslu fyrir forsrh. sem lá fyrir hæstv. ráðherrum merkt sem trúnaðarmál. Þá skeður hið óvænta að trúnaðarskýrslan er send á póstfaxi til svæðisútvarps Austurlands
síðdegis á föstudag. Þennan atburð, hæstv. forseti, tel ég vera mjög alvarlegan vegna þess að hér er það sjálft forsrn. sem á í hlut. Og ég vil leyfa mér að segja það að íbúar Seyðisfjarðar, og sérstaklega fólkið sem hefur mátt þola atvinnuleysi og erfiðleika í meira en eitt og hálft ár, á aðra framkomu skilið af hálfu forsrn. en að trúnaðarskjölum sé lekið í tiltekinn fjölmiðil. Aðilar á Seyðisfirði hafa lagt mikla vinnu í að endurreisa atvinnulífið þar og það er ekkert auðvelt verk að endurreisa atvinnulíf í fiskvinnu úti á landi um þessar mundir. Ég hlýt því að harma það að trúnaðarskjöl skuli leka frá sjálfu forsrn., merkt ,,trúnaðarskjöl``, þegar þessi mál eru til afreiðslu í hæstv. ríkisstjórn og hafa ekki verið afgreidd.