Kristinn Pétursson :
Hæstv. forseti. Mér kemur á óvart svar starfandi forsrh. um að það sé álitamál hvenær trúnaði sé létt af skjölum og hvenær ekki. Skjöl merkt trúnaðarmál eru trúnaðarmál. Skýrsla Byggðastofnunar er dags. 18. febr. Síðan líða fjórir dagar. Þá hefur skýrslan rétt verið tekin til umfjöllunar í hæstv. ríkisstjórn en erindi hennar ekki afgreitt og á því stigi afhendir aðstoðarmaður forsrh. tilteknum fjölmiðli, svæðisútvarpi Austurlands, skýrsluna á póstfaxi. Þessi vinnubrögð finnst mér fyrir neðan allar hellur og þetta skaðar auðvitað viðkomandi byggðarlag og viðkomandi fyrirtæki sem verið er að reyna að reisa við og á í miklum erfiðleikum.
Ég verð að leyfa mér að krefja hæstv. starfandi forsrh. um svar við því: Hver létti þessum trúnaði af? Er þetta birt með leyfi hæstv. forsrh.? Hver létti trúnaði af skjölunum? Það er ekkert bæði og, trúnaður og ekki trúnaður, á skjölum sem merkt eru trúnaðarmál. Þau eru merkt trúnaðarmál og verða því að skoðast sem slík af starfsmönnum forsrn. þar til yfirmaðurinn léttir trúnaði af. Ég leyfi mér að óska svars við því hvort hæstv. forsrh. leyfði að þetta yrði sent til fjölmiðils.