Stefán Valgeirsson :
Virðulegi forseti. Ég geri ekki mikið mál úr því þó að þessi skýrsla út af fyrir sig hafi komist í fjölmiðla. Ég held nefnilega að hún hafi átt erindi í fjölmiðla. Ég held að það sé nauðsynlegt að umræða fari að hefjast um hvernig fer fyrir byggðarlögum og þjóðinni ef á að halda áfram að láta kvótann eingöngu fylgja skipunum. Það er umhugsunarvert að þessi staða skuli einmitt koma upp í kjördæmi hæstv. sjútvrh.
Ég get ekki átalið neinn fyrir það að láta þessi plögg fara til fjölmiðla þar sem búið er að (( Gripið fram í: Þetta er trúnaðarmál.) ja, það var trúnaðarmál og er alltaf trúnaðarmál, hv. þm., þangað til ríkisstjórn er búin að fjalla um það. Þá er það hennar mál hvort hún léttir því. Það er trúnaðarmál á meðan og það er hún sem ákveður hvenær það er trúnaðarmál og hvenær það fellur úr gildi. Það er málið. En þetta á sannarlega erindi til þings og þjóðar og það gæti verið að einhverjir mundu rumska og fara að hugsa sitt mál betur þegar staðan er orðin jafnáþreifanleg og í þessu máli.