Karvel Pálmason :
Virðulegur forseti. Mér finnst rétt við 1. umr. þessa mikilvæga máls að fara örfáum orðum efnislega um það án þess að ég sé að taka beina afstöðu til frv. eins og það nú liggur fyrir. Ég dreg ekkert í efa að ýmislegt af því sem mér sýnist þar vera gæti verið til hins betra. Það er í fyrsta lagi að taka ákvörðun um hvar þetta mál eigi heima í raun og veru, hver eigi að ákvarða, hver eigi forsvarsréttinn. Það þarf að liggja fyrir. Og líka hitt að ég tel mjög æskilegt að valdinu sé dreift frá skrifstofuborðum hér í Reykjavík og út á meðal hins almenna fólks, út á meðal landsvæðanna. Það er mjög mikilvægt að slíkt sé gert.
Við höfum allt of lengi búið við það að ákvarðanir eru teknar hér við skrifstofuborð í Reykjavík og boðsendar þaðan, ekki bara í þessu máli heldur í allt of mörgum. Breyting í þá veru að færa þetta vald til fólksins sjálfs er jákvæð, en auðvitað er ekki sama hvernig að því er staðið. Það eru trúlega til fleiri en ein og fleiri en tvær leiðir til þess að færa þetta vald raunverulega í hendur heimaaðila.
Ég hygg að það í frv. sem að þessu lýtur gæti orðið til þess að greiða leið til þess að fólk almennt fái sjálfsákvörðunarrétt heima í héraði og að því hlýtur að vera stefnt.
Hitt hefur valdið mér hugsunum. Nú er það vitað að lífeyrissjóðirnir, sem aðilar vinnumarkaðarins hafa byggt upp, eru þeir sem fjármagna að langmestu leyti húsnæðiskerfið. Auðvitað er öllum ljóst að ef þess nyti ekki við væri kerfið sem slíkt lítt ef nokkuð nothæft til lánveitinga. Nú er talað um að draga úr áhrifum þessara aðila að því er varðar stjórnun héðan að sunnan og hæstv. ráðherra sagði hér áðan að þetta ætti að flytja út í fjórðungana þannig að áhrif þessara aðila ættu að vera þar. Ég hlýt að fagna því ef það er meiningin og verður í reynd að skrifstofubáknið verði fært frá Alþýðusambandinu og Vinnuveitendasambandinu beint út til hinna óbreyttu félaga úti á landsbyggðinni. Ef það er meiningin, og það muni verða í reynd, ekkert slíkt sér maður auðvitað í þessum gögnum, ( Félmrh.: Jú, jú.) Nei, það er ekki það sama, hæstv. félmrh., hvað stendur á blaði og hver verkin verða. Það höfum við landsbyggðarfólk brennt okkur á allt of oft, að það dugar ekki að setja texta á blað. Því þarf að fylgja eftir í verkum ef það á að duga. Og það er einmitt það sem við höfum upplifað allt of oft, ekki í þessu tilviki bara, heldur í allt of mörgum tilvikum, að stjórnvöld hafa sett þetta og hitt á blað, stjórnarsáttmálar hafa verið prentaðir sérstaklega með ýmsum gylliboðum í orðum á blaði en engar efndir orðið í þeim tilvikum. Og ég hygg að landsbyggðarfólk sé löngu orðið þreytt á því að sjá þetta prentað á blöðum en efndir engar. Nú vil ég taka sérstaklega fram að ég er ekki að vísa þessu til hæstv. félmrh., alls ekki sérstaklega. Þetta höfum við búið við frá allt of mörgum hæstv. ríkisstjórnum til langs tíma og allt of mörgum ráðherrum. Kannski hefur viðhorf manna breyst í ljósi þeirrar reynslu sem fengin er að þessi stjórnun gengur ekki til lengdar gagnvart landsbyggðarfólki nema þá því aðeins að meiningin sé að hrekja fólk frá landsbyggðinni hingað á höfuðborgarsvæðið. Og mér sýnist allt benda til þess að beitt hafi verið seindrepandi meðulum til þess að flæma fólk frá landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið og suðvesturhornið. Og enn tek ég fram að ég er ekki að beina þessu til hæstv. fémrh. Þar eiga aðrir miklu fremur sök á því sem á undan er gengið.
En sé þetta hin raunverulega meining, að færa valdið til heimabyggðanna, ákvörðunarréttinn þangað, þá er það að vísu af hinu góða.
Við höfum nóg skrifstofubákn héðan frá skrifstofuborði í Reykjavík til að berjast við þó að með einhverjum hætti linni því og fólkið fái völdin í sínu heimahéraði.
Ég er ekki með þessu að lýsa neinni sérstakri blessun á þetta frv. Það þarf auðvitað að skoðast og athuga hvort menn eru í raun og veru að leggja til breytingu til hins betra frá því sem verið hefur. En vissulega er ástæða til þess að fagna því að einstakir hæstv. ráðherrar eygja það a.m.k. að hægt sé að breyta til til hins betra. Beita miðstýringunni til þess að fólkið í landinu, vítt og breitt, fái ákvörðunarréttinn í stað þess að hann hefur verið tekinn nánast og í velflestum tilvikum héðan frá Reykjavíkursvæðinu.