Karl Steinar Guðnason :
Virðulegi forseti. Það frv. sem hér liggur fyrir er árangur af nefndarstarfi þar sem aðilar vinnumarkaðarins voru aðilar að. Þar var fjallað um það hvernig skyldi breyta yfirstjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins, hvernig mætti auka valddreifingu og hvernig mætti koma þessum málum í betra lag. Það er ekki vafi á því að fólk sem býr úti á landsbyggðinni hefur oft átt í erfiðleikum með að hafa samband við Húsnæðisstofnun. Þetta er eitt stórt apparat hér í Reykjavík, hvar menn hafa haft misjafnan aðgang að eftir búsetu. Þetta frv. lýtur að því að reyna að breyta þessu, færa valdið út í héruðin og það tekið upp að verkalýðshreyfingin fái sína fulltrúa til að fjalla um þau mál sem þar koma fyrir. Það er gerð grein fyrir því hvert verður hlutverk umdæmisstjórnanna og þar sjá hv. þm. hvað þessum umdæmisskrifstofum er ætlað, það er mjög veigamikið hlutverk. Það verður ein stjórn Húsnæðisstofnunar sem verður áþekk stjórn hverrar annarrar ríkisstofnunar sem fer með meginmál eins og rekstur stofnunarinnar sjálfrar. Það má þá segja að hlutverk þeirrar stjórnar breytist allverulega.
Ég er þeirrar skoðunar að áhrif verkalýðshreyfingarinnar á þessi mál muni síst vera minni með þeirri breytingu sem nú er gerð og ég tel þessa breytingu mjög hagstæða, einkum fyrir þá sem búa úti á landsbyggðinni. Það má náttúrlega hafa mörg orð um það hvernig framkvæmdin verður, það vitum við náttúrlega ekki um, hún getur orðið á ýmsa vegu. Þetta er tilraun til að koma á móti nýjum tíma, á móti þörfum fólksins í hinum dreifðu byggðum landsins og ég vænti þess að menn horfi á þessi mál í því ljósi.