Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
Virðulegi forseti. Ég sé ástæðu til þess að fara hér nokkrum orðum um ræðu síðasta ræðumanns. Ég held að það sé ljóst ef menn fara yfir hlutverk umdæmisstjórnar að þarna er verið að fela umdæmisstjórnunum mjög viðamikil og stór verkefni sem hafa verið á hendi húsnæðismálastjórnar hingað til. Það á bæði við að því er varðar félagslegar íbúðir og félagslega þáttinn og líka varðandi almenna lánakerfið.
Hér er um að ræða viðamikið verkefni sem umdæmisstjórn hefur að því er varðar íbúðarkaupendur og íbúðarbyggjendur sem er almenn ráðgjöf og fræðsla um lánamál og það er þjónusta og verkefni sem þessi umdæmisstjórn hefur í umboði húsnæðismálastjórnar. Það er því ljóst að hér er um verulega mikil verkefni að ræða sem flutt eru frá Húsnæðisstofnun hér á höfuðborgarsvæðinu til umdæmisstjórna úti á landsbyggðinni, þar sem fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar hafa tvo fulltrúa í umdæmisstjórn, eins og ég sagði áður.
Varðandi fullyrðingar hv. þm. um að með þessu frv. sé verið að kippa grundvellinum undan skuldabréfakaupum lífeyrissjóðanna, þá finnst mér mjög sérstakt að hann færi það fram sem rök að þarna sé verið að fækka fulltrúum í húsnæðismálastjórn. Ég taldi satt að segja að grundvöllurinn fyrir því samkomulagi sem var gert 1986 væri sá að það var verið að beina auknu fjármagni frá lífeyrissjóðunum inn í húsnæðiskerfið til þess að tryggja hærri lán til lántakenda og lengri lánstíma og betri lánakjör. En að grundvöllurinn að því samkomulagi hefði ekki verið að fulltrúar Vinnuveitendasambandsins mundu fá þar einn fulltrúa vegna þess að . . . ( GHG: Þetta er útúrsnúningur. Ég sagði meðal annars.) Meðal annars. En mér fannst það koma mjög vel fram í ræðu hv. þm. að þetta var dregið fram. (Gripið fram í.) Fulltrúi ASÍ átti sæti í húsnæðismálastjórn áður og hér var fyrst og fremst um það að ræða að fulltrúi VSÍ kom inn en ég tel að grundvöllurinn að þessu samkomulagi, eins og ég hef sagt, hafi verið sá að það var verið að beina meira fjármagni frá lífeyrissjóðunum til þess að skapa aukinn rétt hjá lántakendunum, hærra lán og lengri lánstíma.
Að því er varðar það sem hv. þm. vitnaði til í greinargerð með frv. þar sem hann nefndi það sem fram kemur í 3. gr. og tók sérstaklega fyrir þar sem segir orðrétt, með leyfi forseta: ,,Hagsmunir Húsnæðisstofnunar ríkisins kunna hins vegar að vera aðrir og getur það leitt til hagsmunaáreksturs. Fulltrúar aðila vinnumarkaðarins, sem eru nátengdir lífeyrissjóðunum, kunna að þurfa að gæta þess annars vegar að lífeyrissjóðirnir fái sem besta ávöxtun fjár síns og hins vegar að Húsnæðisstofnun ríkisins fái lán með sem bestum kjörum.``
Ég held að það sé ekki rétt, hv. þm., eins og það var orðað að hér sé verið að flytja slíkar breytingar til þess að ná niður ávöxtun á fjármunum lífeyrissjóðanna,
eins og hv. þm. orðaði það. Ég tel að lífeyrissjóðirnir hafi sýnt að þeir eru fullfærir um að gæta hagsmuna sinna enda kemur það fram í núgildandi lögum við hvað á að miða. Þar er talað um að lánskjör á skuldabréfum skuli miðast við þau kjör sem ríkissjóður býður almennt á fjármagnsmarkaði. Það eru fulltrúar lífeyrissjóðanna sem hafa samið þarna fyrir hönd sjóðanna og það er þeirra að gæta hagsmuna lífeyrissjóðanna og ég tel að þeir hafi gert það. En það eru ekki fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar í húsnæðismálastjórn sem semja fyrir lífeyrissjóðina.
En af því að hv. þm. tók þetta upp vil ég líka benda á annað sem er nokkuð athyglisvert í grg. með þessu frv. Á bls. 5 kemur einmitt skoðun húsnæðismálastjórnar fram á því hvert sé hennar hlutverk. Hér kemur fram í grg. að á fundi húsnæðismálastjórnar 23. nóv. 1989 var gerð samþykkt vegna ,,frétta og viðtala í sjónvarpi, útvarpi og blöðum``.
Þar segir, með leyfi forseta: ,,Í þessari samþykkt húsnæðismálastjórnar kemur fram afstaða hennar til stjórnsýslulegrar stöðu Húsnæðisstofnunar en þar segir m.a.: ,,Í álitsgerð Ráðgjafaþjónustu Lagadeildar Háskóla Íslands um stjórnsýslulega stöðu Húsnæðisstofnunar ríkisins segir þetta meðal annars:
,,Húsnæðismálastjórn ber ekki ábyrgð gagnvart ríkisstjórninni í heild. Hún þarf ekki að taka við starfsfyrirmælum frá fagráðherrum. Hins vegar hefur hún venjulega upplýsingaskyldu gagnvart honum og Alþingi``.``
Og síðan kemur orðrétt, eins og sagt var í ályktun frá húsnæðismálastjórn, sem er mjög athyglisvert satt að segja: ,,Ábyrgð einstakra fulltrúa í stjórn Húsnæðisstofnunar er, auk allrar venjulegrar starfsábyrgðar stjórnarmanna fyrirtækja og stofnana, fyrst og fremst fólgin í því að tala máli umbjóðenda sinna.``
Ég hefði skilið að hlutverk húsnæðismálastjórnar væri allmeira heldur en að tala máli umbjóðenda sinna. Yfirstjórn Húsnæðisstofnunar, húsnæðismálastjórn, hefur ýmis önnur hlutverk eins og að hafa eftirlit með fjárhag, rekstri og starfsemi Húsnæðisstofnunar á margvíslegan hátt og ber ábyrgð á fjárhag Húsnæðisstofnunar. Það er því mjög sérkennilegt að fulltrúar húsnæðismálastjórnar líta á það sem sitt hlutverk fyrst og fremst að tala máli umbjóðenda sinna. En það hlýtur náttúrlega líka að vera hlutverk húsnæðismálastjórnar að fylgjast með fjárhag Húsnæðisstofnunar, hafa eftirlit með vaxtaákvörðunum, bæði á inn- og útlánum, og fleiri þáttum.
En ég vil vísa því á bug, hv. þm., að hér sé verið að flytja frv. sem felur í sér einhver ákvæði til þess að ná niður ávöxtun á fjármunum lífeyrissjóðanna. Það er alrangt. Lífeyrissjóðirnir hafa haft það hlutverk að gæta þess að ávaxta sem best fjármuni lífeyrissjóðanna og ég held að þeim hafi tekist það og ég held að ákvæði þessa frv. breyti þar engu um.