Stefán Valgeirsson :
Herra forseti. Ég vil þakka flm. fyrir þá þrautseigju að leggja þetta frv. fram í fjórða sinn þó að hæstv. bankamálaráðherra sjái ekki að það hafi neinn tilgang miðað við stöðu mála nú. Hann talar um að það sé hagstjórnartæki hvernig verðtryggingin er. Var það ekki líka þegar við mynduðum ríkisstjórnina? Hefur eitthvað breyst síðan? Ráðherrann talar líka um það að fólk þurfi að hafa traust á ráðherrum, traust á ríkisstjórnum, traust á því að menn standi við orð sín. ( Viðskrh.: Og þingmönnum.) Og þingmönnum, já. En hefur ríkisstjórnin og hæstv. ráðherra staðið þannig að málum í sambandi við verðtryggingu og í sambandi við vexti að hann geti ætlast til þess að hann fái traust? Ég segi nei.
Þegar við mynduðum ríkisstjórnina 1988 var ákveðið að raunvextir færu ofan í 6%. Hvernig hefur það verið framkvæmt? Hverjir eru vextirnir? Ætli almenningur og þeir sem reka fyrirtækin mundu bera það að haldið hafi verið á þeim málum miðað við þau fyrirheit sem ráðherrann gaf og ríkisstjórnin? Langt frá því. Raunvextir eru nú 8 -- 9% og í sumum tilvikum enn þá hærri. Meira að segja var gefið loforð fyrir því þegar við mynduðum ríkisstjórnina að það yrði athugað að fara lengra niður með raunvextina en í 6%. Það átti að athuga það. En mörkin voru 6%.
Svo er hæstv. ráðherra að minnast á Ólafslög í þessu sambandi. Hvað var talað um þegar Ólafslög voru sett? Það var talað um að eðlilegir raunvextir væru 2%, í mesta lagi 3%. Ég er nú ekki með grein sem Pétur Blöndal skrifaði rétt á eftir í vasanum. Þar taldi hann eðlilega raunvexti vera 2 -- 3% og í allra hæsta lagi 4%. Ég get sýnt hæstv. ráðherra þessa grein frá árinu 1980. Nei, hæstv. ráðherra getur ekki stært sig af því að hann hafi haldið á þessum málum á þann veg að hann geti ætlast til þess að fá traust fyrir. Það verð ég að segja. Það er útilokað. Og ég er hissa á því að hann skuli vera það staffírugur, miðað við stöðu þessara mála og hvernig þróunin hefur verið, að hann skuli bara --- ja, ég verð að segja bara voga sér að tala á þann veg. Eða heldur hann að menn séu farnir að gleyma hlutunum, gleyma loforðunum, gleyma hvað gerðist í þessum efnum? Heldur hann að menn muni það ekki? Eða treystir hæstv. ráðherra á það að fólk sé orðið svo ruglað að það muni ekki hverju var lofað, hvernig staða mála er? Ég veit að sumt fólk fylgist ekki nógu vel með og það getur verið að hæstv. ráðherra sé að tala til þess fólks.
En það var búið að lofa því fyrir jól, þegar hér var rætt um vexti utan dagskrár, að slíkri umræðu yrði haldið áfram eftir áramótin, í fyrstu vikunni eftir að þing kæmi saman. Sú umræða hefur ekki farið fram enn. Og af þeirri ástæðu minnist ég á það hér og nú hvernig að þessum málum hefur verið staðið og er staðið. Ég er ekki alveg sammála 2. gr. frv. hv. þm. Eggerts Haukdals, það þarf að athuga það mál mikið betur.
Ég sé að ráðherra er að fara út svo að það er ekki ástæða til þess að ræða þetta öllu lengur. ( Forseti:
Forseti vill láta þess getið að ráðherra er ekki á förum úr húsinu, heldur þurfti nauðsynlega að bregða sér úr salnum en er væntanlegur aftur til fundar von bráðar.) Það kann að vera þá að ég biðji um orðið aftur, herra forseti. ( Forseti: Það verður auðsótt mál.)