Meðferð opinberra mála
Þriðjudaginn 26. febrúar 1991


     Friðjón Þórðarson :
    Herra forseti. Það væri full ástæða til að ræða þetta lagafrv. í nokkuð löngu máli þegar á þessu stigi, en til þess er nú ekki tími að ég ætla, en ég mun leyfa mér að víkja að því í örfáum orðum.
    Hér er stórmál á ferðinni enda sannaði ræða hæstv. dómsmrh. það því að hún var löng og ítarleg eins og eðlilegt var. Ég tel þetta vera dæmi um mál, þ.e. 98. mál þingsins, sem er búið að leggja leið sína um Ed. á nokkuð löngum tíma en nú kemur það til Nd. og henni er ætlað að afgreiða það á tveim vikum eða svo, þ.e. ef þetta á að verða að lögum fyrir þinglok. Ég tel þetta það stórt mál að það verði mjög miklum vandkvæðum bundið.
    Að sjálfsögðu er hér um mikilvægt mál að ræða og það sýnir t.d. að skv. 194. gr. frv. eiga við gildistöku þess að falla úr gildi lög og ákvæði einstakra laga eins og þar eru talin í 69 töluliðum. Og þau eru af mjög ólíkum toga. Það eru auðvitað í fyrsta lagi lög um meðferð opinberra mála, nr. 74/1974, en svo eru önnur lög, t.d. skv. 16. tölul. lög um friðun héra frá 1914, skv. 19. tölul. lög um þyngd bakarabrauða frá 1917, lög um ostrurækt frá 1939 og ákvæði um að fella eigi 26. gr. laga um Brunabótafélag Íslands úr gildi, það er undir 50. tölul. Og svo dæmi um nýrri löggjöf, t.d. skv. 69. tölul., þar er rætt um 28. gr. laga um fangelsi og fangavist, nr. 48 frá 19. maí 1988, svo að þetta sýnir nú með öðru að hér er ekkert smáverkefni fyrir höndum fyrir þá nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar. Það sannar það líka að hæstv. dómsmrh. gat þess að í Ed. hefðu 17 breytingartillögur verið samþykktar. Og í 195. gr. frv. er sagt að við gildistöku þess breytist ákvæði laga eins og þar er talið upp og þar er upptalning hvorki meira né minna en undir 23 töluliðum. Svo að ég endurtek það að hér er ekkert smáverk fyrir höndum því að ég þekki það af eigin raun að þetta eru mál sem þó nokkra stund þarf til að glöggva sig á, sem eðlilegt er, fyrir menn sem ekki hafa sérstaklega um þau fjallað.
    En hæstv. ráðherra gat þess að þetta frv. fjallaði um réttarreglur í refsimálum eins og tekið er fram sérstaklega í athugasemdum. Það er ekki að efa að frv. er samið af vandvirkni, samið á vegum réttarfarsnefndar að tilhlutan dómsmrn. og sagt að sé liður í þeirri heildarendurskoðun á dómstólakerfi landsins og réttarfarsreglum sem grundvöllur hefur verið lagður að með lögum nr. 92 frá 1. júní 1989, um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði.
    Ég sé mér ekki fært að fara að ræða þetta mál efnislega, en vil aðeins benda á þetta og ítreka enn og aftur að þetta sannar það að þær reglur sem við höfum búið við um meðferð mála hér á hv. Alþingi eru náttúrlega stórgallaðar þegar þær leiða til þess að svona mikilvægt mál er næstum allan þingtímann í annarri deild þingsins en kemur svo í hendur hv. þm. í hinni deildinni rétt fyrir þinglok.
    En það verður að sjálfsögðu litið á þetta mál eftir bestu getu, en að öðru leyti verðum við að sjá hvað setur.