Greiðslujöfnun fasteignaveðlána
Miðvikudaginn 27. febrúar 1991


     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga nr. 63/1985. Ríkisstjórnin ákvað í desember sl. að skipa ráðherranefnd sem falið var það verkefni að gera tillögur um uppgjör húsnæðislánakerfisins frá 1986 og fjárhagsvanda Byggingarsjóðs ríkisins. Ráðherranefndin lagði m.a. til að hætt yrði að taka við umsóknum úr lánakerfinu frá 1986 og vextir á útlánum Byggingarsjóðs ríkisins frá 1. júlí 1984 yrðu hækkaðir í 5%. Framkvæmd vaxtahækkunar yrði þannig að vextir yrðu hækkaðir við eigendaskipti á íbúð og vextir á öllum útlánum frá 1. júlí 1984 yrðu hækkaðir 10 árum eftir stofndag láns. Þá lagði ráðherranefndin enn fremur til að ákvæði laga um greiðslujöfnun fasteignaveðlána einstaklinga, um að hækkun raunvaxta leiði ekki til hækkunar á greiðslubyrði, yrði fellt niður. Rétt væri hins vegar að benda á það að á móti hækkun vaxta kæmi að núgildandi vaxtabótakerfi mundi draga úr aukinni vaxtabyrði hjá þeim tekjulægri og eignaminni. Tillögur ráðherranefndarinnar eru tilefni þessa frv. sem ég mæli nú fyrir.
    Tilgangur laga um greiðslujöfnuð fasteignaveðlána var sá að fyrirbyggja að greiðslubyrði vegna húsnæðislána þyngdist vegna þess að misgengi skapaðist milli hækkunar lánskjaravísitölu eða annarrar viðmiðunarvísitölu og hækkunar lána og/eða vegna hækkunar raunvaxta. Þá sagði í greinargerð með frv. því sem varð að lögum nr. 63/1985, að meginatriði frv. snúi að tilhögun verðtryggingar húsnæðislána í framtíðinni og frv. væri liður í ráðstöfun ríkisstjórnarinnar til að aðstoða þá sem lent höfðu í alvarlegum greiðsluerfiðleikum við öflun húsnæðis. Lögunum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána er ætlað að ná sjálfkrafa til allra lána byggingarsjóðanna sem veitt eru eftir gildistöku laganna og ná sjálfkrafa einungis til verðtryggðra lána úr byggingarsjóðunum og eigi jafnt við um lán með jöfnum afborgunum og jafngreiðslulán.
    Vextir af lánum úr Byggingarsjóði ríkisins hafa verið breytilegir frá 1. júní 1984. Hins vegar hafa ákvæði laga um greiðslujöfnun fasteignaveðlána einstaklinga komið í veg fyrir að vaxtahækkun skilaði sér í bættri fjárhagsstöðu Byggingarsjóðs ríkisins til annarra útlána. Ástæðan er sú að samkvæmt gildandi lögum um greiðslujöfnun er við lántöku reiknað út svokallað greiðslumark sem er gjaldfallin afborgun og upphaflega umsamdir vextir á verðlagi við lántöku ef um lán með jöfnum afborgunum er að ræða, en árgreiðsla á verðlagi lántöku ef um jafngreiðslulán er að ræða. Á gjalddaga láns er greiðslumarkið síðan framreiknað miðað við launavísitölu sem skilgreind er í 6. gr. laganna, sbr. lög nr. 108/1989. Afborgun ásamt vöxtum þannig framreiknuð er borin saman við fjárhæð afborgunar verðbóta og vaxta samkvæmt lánsskilmálum og reynist afborgunin með vöxtum og verðbótum, þannig reiknuð, hærri en framreiknað greiðslumark greiðist einungis sá hluti gjalddagafjárhæðar sem samsvarar greiðslumarki. Ógreiddur hluti gjalddagafjárhæðar myndar skuld á sérstökum jöfnunarreikningi sem telst hluti af höfuðstól lánsins. Sé skuld á jöfnunarreikningi að loknum lánstímanum framlengist lánstími og skal greiða skuldina á jöfnunarreikningi á sama gjalddaga og lánið með sama hætti.
    Samkvæmt lagaákvæðum um vaxtabætur til handa þeim sem kaupa eða byggja íbúðarhúsnæði til eigin nota teljast einungis gjaldfallnar verðbætur og vextir til vaxtagjalda. Að óbreyttum lögum um greiðslujöfnun þýðir raunvaxtahækkun á húsnæðislánum það að lánstími lengist, þ.e. skuld leggst við höfuðstól og lántakandi nýtur ekki vaxtabóta vegna vaxtahækkunar. Með því að fella misgengi vegna raunvaxtahækkunar burt úr lögunum er verið að tryggja að þeir sem eiga rétt á vaxtabótum fái raunvaxtahækkunina bætta.
    Í þessu frumvarpi er lagt til í 1. gr. að misgengi sem orsakast af vaxtahækkun hafi ekki í för með sér greiðslujöfnun. Raunvaxtahækkun af láni Byggingarsjóðs ríkisins mundi því skila sér beint í sjóðinn en ekki leggjast við höfuðstól skuldanna og fela í sér lengri lánstíma. Lántakendur eiga þá kost á vaxtabótum vegna vaxtahækkunar uppfylli þeir að öðru leyti skilyrði skattalaga um vaxtabætur en þeir fengju annars ekki vaxtabætur. Raunverulegur tilgangur laganna stendur eftir sem áður óbreyttur, að misgengi lánskjara og launa valdi fólki ekki fjárhagslegri byrði.
    Í 2. gr. frv. er lögð til breyting á gerð lánssamnings hvað vexti varðar. Er það til samræmis við ákvæði 1. gr., þ.e. greiðslumark ræðst eftirleiðis ekki af upphaflegu vöxtunum heldur þeim vöxtum sem eru á hverjum gjalddaga. Ríkisstjórnin getur því breytt vöxtum á lánum úr Byggingarsjóði ríkisins án þess að það valdi greiðslujöfnun.
    Með fyrrgreindri tilhögun er ekki hróflað við upphaflegum tilgangi laganna sem var að aðstoða þá lántakendur sem höfðu orðið illa úti á misgengi launa og lánskjaravísitölu. Og með frv. er opnuð leið fyrir lántakendur að fá vaxtahækkun bætta gegnum vaxtabótakerfið.
    Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þetta frv. en legg til að að lokinni þessari umræðu verði því vísað til 2. umr. og hv. félmn.