Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason) :
Virðulegi forseti. Ég fagna mjög svari hæstv. félmrh. Mál þessi hafa oft verið til umræðu hér á Alþingi en þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri tillögur til úrbóta og hvað er fram undan á jákvæðan hátt fyrir þessa ógæfusömu einstaklinga --- ekki má ég kannski segja það, heldur fyrir þann hóp fólks sem á við þessi gríðarlegu vandamál að stríða, þennan sjúkdóm. Ég þekki mörg skelfileg dæmi. Ég gæti bætt við þau dæmi sem hæstv. ráðherra greindi frá hér áðan en læt vera að nefna þau. Hins vegar sýnist mér, eins og reyndar kom fram í máli hæstv. félmrh., að það sé mjög mikill skortur á samvinnu milli ráðuneyta á kostnað þeirra sem erfitt eiga varðandi sinn sjúkdóm.
En ef ég má syndga upp á náðina, þá kviknaði ein spurning hjá mér í viðbót. Það var um lottóið, hvort þeir fjármunir sem þar safnast hafa að einhverju leyti verið notaðir til þessara mála. Ég tel það mjög mikils virði hvað hefur safnast mikið fé til að kaupa húsnæði fyrir fatlaða. Ég tel reyndar að það ætti að vera stærri hluti af lottóinu sem þangað ætti að fara. En mig langar til að bæta við einni spurningu: Hefur lottóið orðið til þess að eitthvað hefur runnið til hagsbóta fyrir þessa sjúklinga?