Fyrirspyrjandi (Geir H. Haarde) :
Virðulegi forseti. Ég hef leyft mér að bera fram á þskj. 643 fyrirspurn til hæstv. dóms - og kirkjumrh. í þremur liðum um kirkjugarðsgjöld og útfararþjónustu. Fsp. er svohljóðandi, með leyfi forseta:
,,1. Telur ráðherra heimilt samkvæmt ákvæðum laga nr. 21/1963, um kirkjugarða, að verja hluta kirkjugarðsgjalda til greiðslu kostnaðar við útfararþjónustu?
2. Ef slík ráðstöfun tekna kirkjugarða telst heimil hyggst ráðherra þá beita sér fyrir því að allir greiðendur útfararkostnaðar eigi jafnan kost á hlutdeild í þessum tekjum?
3. Hefur ráðherra hug á að beita sér fyrir því að allir aðilar, sem veita útfararþjónustu, búi að öðru leyti við sambærilega samkeppnisstöðu?``
Ástæðan fyrir því að þessi fsp. er hér flutt, virðulegi forseti, er sú að athygli mín hefur verið vakin á því, og eflaust fleiri þingmanna, að framkvæmd á þessum lögum að því er varðar ráðstöfun kirkjugarðsgjalda mun vera eitthvað breytileg, bæði milli kirkjugarðsstjórna og eins innan einstakra umdæma. Ég er þeirrar skoðunar að ef kirkjugarðsgjöldum er ráðstafað til að greiða niður kostnað við útfararþjónustu og ef slík ráðstöfun telst heimil, þá eigi allir þeir sem greiða þessa þjónustu að eiga jafnan kost á hlutdeild í þeim tekjum og þau fyrirtæki sem við þetta starfa að búa að öðru leyti við sambærilega samkeppnisstöðu. Ég hef þess vegna afráðið að leita eftir því við ráðherra hvort hann er þessu sammála. En fyrsta spurningin er auðvitað sú hvort þessi ráðstöfun teljist heimil og 1. liður fsp. lýtur að því atriði.