Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Þessi þáltill. er flutt til að fá heimild Alþingis fyrir því að Ísland fullgildi samþykkt sem afgreidd var á 59. alþjóðavinnumálaþinginu, sem haldið var árið 1974, og fjallar um varnir gegn og eftirlit með áhættu í starfi vegna efna sem valda krabbameini.
    Þess má geta að þótt Alþjóðavinnumálastofnunin hafi lengi látið sig miklu skipta vinnuvernd og vinnuumhverfismál hefur sú mikla umræða sem átt hefur sér stað á síðustu árum hleypt nýju lífi í starf stofnunarinnar á þessu mikilvæga sviði. Aukin mengun hefur gert fólk betur meðvitað um gildi heilsusamlegs umhverfis. Umræður um umhverfisvernd einskorðast ekki lengur við þröngan hóp sérfræðinga heldur eru þær á dagskrá alþjóðastofnana og þjóðþinga. Dæmi um þetta er skýrsla forstjóra Alþjóðavinnumálaskrifstofunnar til alþjóðavinnumálaþingsins sumarið 1990 sem fjallaði um umhverfi og þróun. Í skýrslunni setur forstjórinn fram hugmyndir um það hvernig stofnunin og aðildarríki hennar geti lagt sitt af mörkum til að bæta umhverfið með aðgerðum á vettvangi vinnumálanna. Meðal þess sem lögð er rík áhersla á í skýrslunni er fullgilding alþjóðasamþykkta ILO á sviði öryggis - og hollustuhátta í atvinnulífinu. Á þann hátt verði best tryggð nauðsynleg samræming á sameiginlegum aðgerðum aðildarríkja Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem skili árangri við að bæta umhverfi starfandi fólks á vinnumarkaði.
     Í framhaldi af skýrslu forstjórans og umræðum sem áttu sér stað á 77. alþjóðavinnumálaþinginu sl. sumar var lögð fyrir samstarfsnefnd félmrn. og heildarsamtaka aðila vinnumarkaðarins, sem fjallar um samskipti Íslands við Alþjóðavinnumálastofnunina, skrá yfir alþjóðasamþykktir á sviði vinnuumhverfismála sem félmrn. telur að komi til álita að fullgilda. Nefndin fór yfir þessa skrá og var samþykkt að senda hana Vinnueftirliti ríkisins til umsagnar. Vinnueftirlitið lagði til að byrjað yrði á því að fullgilda tvær alþjóðasamþykktir, þ.e. samþykkt nr. 155, um öryggi og heilbrigði við vinnu og starf frá árinu 1981, og samþykkt þá sem með þessari þáltill. er óskað eftir heimild til að fullgilda, þ.e. samþykkt nr. 139, um varnir gegn og eftirlit með áhættu í starfi vegna efna sem valda krabbameini.
    Á það er rétt að benda að á undanförnum árum og áratugum hefur hvers kyns efnanotkun aukist mjög á vinnustöðum. Jafnframt hafa rannsóknir leitt í ljós að sum þessara efna auka hættu á myndun krabbameins hjá þeim sem komast í snertingu við þau. Hvergi nærri hefur þó verið upplýst að fullu hvaða efni hér um ræðir og nýjar rannsóknir eru stöðugt að leiða í ljós nýjar áhættur af þessu tagi. Erfitt getur verið að staðfesta krabbameinsvirkni efna þar sem oftast líða mörg ár eða jafnvel áratugir frá því snerting við efni hefst og þar til áhrif koma fram. Tilraunir á dýrum og aðrar prófanir geta þó gefið vísbendingu um að efni kunni að vera krabbameinsvaldandi hjá mönnum.
    Mismunandi áætlanir hafa birst um það í öðrum

löndum hversu mikinn hluta krabbameinstilfella megi rekja til krabbameinsvaldandi efna á vinnustöðum og hafa verið nefndar tölur á bilinu 1 -- 20%. Dönsk stjórnvöld hafa gengið út frá að þetta hlutfall sé 4 -- 5%. Ekki liggur fyrir mat á hversu hátt þetta hlutfall kunni að vera hér á landi. Vinnueftirlit ríkisins hefur hins vegar staðið fyrir nokkrum rannsóknum á dánarmeinum og krabbameinum starfsstétta í samvinnu við sérfræðinga við Háskóla Íslands og krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands og með aðstoð Hagstofunnar, verkalýðsfélaga og lífeyrissjóða. Stofnunin rannsakaði einnig dauðsföll af völdum tiltekins krabbameins sem talið er að asbestefni eigi stóran þátt í að valda.
    Alþjóðasamþykkt nr. 139, um varnir gegn og eftirlit með áhættu í starfi vegna efna sem valda krabbameini, var afgreidd af 59. alþjóðavinnumálaþinginu sem haldið var dagana 5. -- 25. júní 1974. Fyrri umræða fór fram árið áður á 58. vinnumálaþinginu. Eftir þær umræður var nokkur ágreiningur um það hvort rétt væri að afgreiða alþjóðasamþykkt um þetta efni eða láta tillögu nægja. Í almennum umræðum í þingnefnd 59. vinnumálaþingsins var fjallað um þennan ágreining. Í máli þeirra sem voru andvígir afgreiðslu samþykktarinnar komu fram rök sem oft heyrast í þessu sambandi, þ.e. að samþykktir séu of skuldbindandi og ekki nógu sveigjanlegar til að taka mið af breytilegum aðstæðum í atvinnulífinu og örri þróun í rannsóknum á orsökum krabbameins. Aðrir þingfulltrúar bentu á að einungis alþjóðasamþykkt hefði nægileg áhrif til þess að hvetja ríkisstjórnir til að grípa til varnaraðgerða á þessu mikilvæga sviði heilsuverndar á vinnustöðum.
     Annað atriði sem þingfulltrúar gerðu að umtalsefni var það hvort skrá yfir efni sem valda krabbameini ætti að fylgja samþykkt eða tillögu. Einnig var skipst á skoðunum um það hvort banna ætti innflutning og útflutning á efnum á skránni eða notkun þeirra yrði háð leyfi opinberra aðila og væri undir sérstöku eftirliti. Margir fulltrúar sáu ýmis vandkvæði á samantekt á slíkri skrá. Ör þróun í efnafræði skapaði forsendur fyrir framleiðslu fjölda nýrra efnasambanda. Því yrði erfitt að endurnýja skrána þannig að hún svari jafnan kröfum tímans. Ekki náðist samstaða um þessi ágreiningsmál og var ákveðið að vísa þeim til vinnuhóps sem falið var að setja fram tillögur sem væru til þess fallnar að brúa bilið á milli ólíkra sjónarmiða. Samkvæmt tillögu vinnuhópsins lagði þingnefndin til að vinnumálaþingið afgreiddi stuttorða alþjóðasamþykkt, ítarlegri tillögu og þingsályktunartillögu þar sem alþjóðavinnumálaskrifstofunni væri falið að safna og hafa tiltækar nýjustu upplýsingar um efni sem valda krabbameini. Full samstaða náðist á vinnumálaþinginu um tillögur þingnefndarinnar.
    Alþjóðasamþykkt um varnir gegn áhættu í starfi vegna efna sem valda krabbameini skiptist í fjórtán greinar. Í fyrstu sex greinunum eru raktar þær frumskyldur til varnar gegn krabbameini sem ríki taka á sig með því að fullgilda samþykktina, en aðrar greinar samþykktarinnar hafa að geyma ákvæði um gildistöku, uppsögn o.fl.

    Í tillögunni er að finna nánari útfærslu á hinum almennu varúðarreglum. Hún er birt sem fylgiskjal II með þessari þáltill.
     Um efni samþykktarinnar gilda á Íslandi lög nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, reglugerð nr. 74/1983, um bann við innflutningi og notkun asbests, reglur nr. 75/1983, um asbest, og reglur nr. 401/1989, um mengunarmörk og aðgerðir til að draga úr mengun á vinnustöðum.
     Í 4. gr. reglna nr. 401/1989 er kveðið á um það að krabbameinsvaldandi efnum skuli skipt í nánar tilgreinda þrjá flokka þar sem skaðsemi þeirra er lögð til grundvallar. Samkvæmt reglunum er ekki heimilt að nota tiltekin efni nema í undanþágutilvikum. Við setningu reglnanna var höfð hliðsjón af samþykkt ILO og eru þær í öllum meginatriðum í samræmi við efni hennar. Þar af leiðandi er ekki gert ráð fyrir því að breyta þurfi lögum né setja ný lög til að fylgja eftir ákvæðum samþykktarinnar hér á landi.
    Á því má vekja athygli að með fullgildingunni axla aðildarríkin ótvíræða skyldu. Annars vegar að vinna að framkvæmd ákvæða hlutaðeigandi samþykktar og hins vegar að samþykkja að haft sé alþjóðlegt eftirlit með framkvæmdinni.
    Samkvæmt 22. gr. stofnskrár Alþjóðavinnumálastofnunarinnar skal aðildarríki senda Alþjóðavinnumálaskrifstofunni reglulega skýrslu um aðgerðir sem það hefur gripið til í því skyni að hrinda í framkvæmd ákvæðum samþykktarinnar. Samkvæmt gildandi reglum skal taka þessar skýrslur saman annað hvert ár og senda alþjóðavinnumálaskrifstofunni. Sérfræðinganefnd á hennar vegum fer yfir skýrslur aðildarríkjanna og birtir niðurstöðu sína í árlegri skýrslu sem er til umfjöllunar í einni af fastanefndum alþjóðavinnumálaþingsins. Frá því Ísland gerðist aðildarríki Alþjóðavinnumálastofnunarinnar árið 1945 hefur félmrn. borið ábyrgð á samningu skýrslna um framkvæmd samþykkta sem Ísland hefur fullgilt.
    Umrædd samþykkt var send sex aðilum til umsagnar, Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Bandalagi háskólamenntaðra starfsmanna ríkisins, Vinnueftirliti ríkisins, Vinnumálasambandi samvinnufélaganna og Vinnuveitendasambandi Íslands. Allir þessir aðilar hafa sent umsagnir og mælt með fullgildingu.
    Virðulegi forseti. Ég vil leyfa mér að leggja til að þáltill. verði að lokinni þessari umræðu vísað til síðari umræðu og hv. félmn.