Byggðastofnun
Föstudaginn 01. mars 1991


     Karl Steinar Guðnason :
    Virðulegi forseti. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að þessar tillögur skipti engu máli. Það er ansi merkilegt að tillögur nefndarinnar sem slíkar eru prentaðar með stærra letri heldur en gengur og gerist hér í frv. sem er greinilega gert til þess að láta þetta líta út fyrir að vera meira að vöxtum heldur en það í raun og veru er. Ekki sé ég aðra skýringu á því.
    En þær tillögur sem hér liggja frammi í frv. til laga eru aðeins loft að mínu mati. Hér er varla nokkur hlutur í þessu frv. sem ekki er heimild fyrir að gera samkvæmt lögum sem gilda í dag. Ég minni á að í Byggðastofnun eru allar hillur fullar af áætlunum og sérstökum skýrslum um hin og þessi efni, um hin ýmsu byggðarlög um allt land. En allt er það starf pappírstígrisdýranna sem þar stjórna eða þeirra sem hafa verið fengnir til þeirra starfa sem verktakar, ég vil nú ekki gera lítið úr starfsliði Byggðastofnunar, því þar er mikið af góðu fólki. ( Gripið fram í: Þú varst að því sjálfur.) Ég er að tala hér, ágæti þingmaður, og ég ræð því sjálfur hvað ég segi. Málið er það að stjórn stofnunarinnar, sem stýrir náttúrlega stofnuninni, hefur stuðlað að því að allar hillur eru fylltar af pappír um ekki neitt. Jú, vissulega góðar hugmyndir oft á tíðum en starfsliðið sem er undir stjórnina sett hefur lítið um það að segja hvort það er framkvæmt sem þar kemur fram eða ekki.
    Ég tel að áfram hafi stjórn stofnunarinnar, og ég vil taka það fram að ég á hér við margar stjórnir stofnunarinnar, heimildir til að gera þessar skýrslur og væntanlega verður það gert í áróðursskyni fyrir einstaklinga sem í stjórn Byggðastofnunar sitja. En það sem vantar er að eitthvað af þeim ágætu hugmyndum sem þar koma fram verði framkvæmdar. Það skortir engar heimildir til meiri skýrslugerðar hjá Byggðastofnun ríkisins.
    Það má kannski segja varðandi 8. gr. að það skuli gera áætlun fyrir fjögur ár í senn og endurskoða það á tveggja ára fresti. En ég tel að það sé varla á það bætandi að auka á skýrslugerð í þeirri stofnun.
    Ef menn trúa á þetta, þá eru menn að flytja í þessum tillögum alveg botnlaust vantraust á þá stjórn sem nú situr fyrir frumkvæðisskort því að ég tel að það séu fullar heimildir fyrir því að gera þetta án þess að breyta lögum.
    Það er talað um að samræma hluti þarna og samstarf við aðrar stofnanir. Þetta er hlutverk stjórnar stofnunarinnar í dag og í núgildandi lögum eru fullar heimildir fyrir því. Og ég spyr: Af hverju hefur það ekki verið gert? Hvað hefur stjórnin verið að gera?
    Svo segir hér í 3. gr.: ,,Byggðastofnun getur átt aðild að atvinnuþróunarfélögum á landsbyggðinni.`` Það er full heimild til að gera þetta í dag og ég veit ekki til annars en Byggðastofnun sé aðili að atvinnuþróunarfélögum í landinu og meira að segja með stjórnarmenn frá Byggðastofnun í atvinnuþróunarfélagi eða -félögum, þannig að ég sé ekki að þetta breyti nokkrum sköpuðum hlut.

    Ég held að það sé algjörlega ótímabært að koma með slíkar tillögur á þessu stigi og mér sýnist á áliti nefndarinnar að það sé margt órætt um það hvernig eigi að framkvæma þá hluti sem þar koma fram. Þetta er óskalisti sem er meinlaus, má segja, en hér er varla hönd á nokkru festandi.
    Ef það er meiningin að hafa uppi byggðastefnu sem skiptir einhverju máli, þá þarf að vinna þessa hluti betur og gera tillögur um það hvernig eigi að framkvæma hlutina. Það hefur ekki verið gert. Mig grunar að nálægð kosninganna hafi ráðið miklu um það að þetta hafi verið sett í frumvarpsform núna. Það sé kjarni málsins.
    Í skýrslunni er tæpt á mörgum hlutum, t.d. að sveitarfélög verði sameinuð. Við erum með sérstök lög um það að sveitarfélög verði sameinuð. Hvernig á að gera þetta? Er það ekki vandinn að sveitarfélögin vilja ekki, í þeim mæli sem margur vildi, að þau verði sameinuð? Það er ósköp fróm ósk að setja það fram að sveitarfélög verði stækkuð verulega. En ég held að það skorti á hvernig það eigi að gerast. Á það að gerast með stjórnvaldaaðgerð eða á fólkið sjálft að fást til samstarfs um það? Það eru til lög og það eru til hugmyndir um það hvernig það skuli gert. Samband ísl. sveitarfélaga hefur lagt mikla vinnu í það að skilgreina þau mál. En því miður hefur ekki tekist að framkvæma þá hluti vegna þess að menn hafa verið ósammála um það hvernig það skuli gert. Þetta er ósköp fróm ósk en ég sé ekki að það séu gerðar neinar tillögur um það að því marki sem skipta máli.
    ,,Meiri hluti nýrra starfa í opinberri þjónustu verði til á landsbyggðinni.`` Ég veit ekki hvernig menn ætla að framkvæma það, hvort það á að gera samþykkt um það á Alþingi að svo skuli vera. Þá erum við nú komnir í ansi austrænt kerfi ef það ætti að verða að veruleika.
    ,,Meira vald verði fært til héraða og samstarf sveitarfélaga aukið.`` Þetta eru frómar óskir og ég get tekið undir þær. En það verður ekki leyst með frómum óskum. Hér segir: ,,Héraðsnefndir skulu mynda byggðastjórnir í hverju kjördæmi um lausn verkefna sem þeim verða falin með lögum.`` Mig minnir að það sé nýbúið að setja lög um svokallaðar héraðsnefndir landshlutasamtaka. Þau eru fyrir hendi. Núverandi stjórn Byggðastofnunar og næstu stjórnir Byggðastofnunar hefðu vissulega getað falið þessum héraðsstjórnum, sem til eru orðnar nokkrar, verkefni ef hún hefði haft burði til að hafa eitthvert frumkvæði til þess.
    Svo kemur hér: ,,Stefnumótandi áætlanagerð með virkri þátttöku heimamanna verði tekin upp á sviði byggðamála.`` Þetta hefur verið í gangi í Byggðastofnun mjög lengi og árangurinn er enginn nema það að hillur þar hafa fyllst af þessum pappír.
    ,,Atvinnuþróunarfélög verði efld og atvinnuþróunarsjóðir styrktir í kjördæmum landsbyggðarinnar.`` Þetta er nokkuð sem er ástæða til að gera en ég sé ekki að það þurfi lagasetningu um það sem er heimilt nú þegar. Ef menn ætla að setja lög um þá hluti, þá er það bara að mínu mati hrein sýndarmennska.

    ,,Jöfnun raforkuverðs og sameining orkufyrirtækja.`` Þetta er nokkuð sem verið er að ræða á öðrum vettvangi og er góðra gjalda vert og ég lýsi sjálfan mig mjög samþykkan því að raforkuverð verði jafnað í landinu. En ekki er að sjá að það séu mjög stefnumarkandi áherslur í skýrslunni um þá hluti nema það að ,,Rafmagnsveitur ríkisins og Landsvirkjun verði sameinuð í eitt orkuöflunar - og dreifingarfyrirtæki þar sem ríkið eigi meiri hluta.`` Jú, jú, þetta er framtíðarverkefni og ég vænti þess að að því verði unnið. Þetta eru ágætis óskir sem þarna koma fram.
    Margt fleira mætti hér tiltaka. ,,Fjárhagur Byggðastofnunar verði efldur.`` Það er ljóst að fjárhagur Byggðastofnunar hefur mjög versnað á síðustu árum og það væri gaman að heyra tillögur um það hvernig ætti að efla fjárhag Byggðastofnunar, hvernig það skuli gert. En það gerist ekki með því að segja í skýrslu: ,,Því er höfuðnauðsyn að eiginfjárstaða stofnunarinnar verði tryggð sem best til þess að hún geti sinnt því umfangsmikla hlutverki sem henni er ætlað.`` Það gerist ekki með frómum óskum heldur með tillögum til aðgerða um það hvaðan peningarnir eiga að koma.
    Þessi nefnd hefur áhyggjur af búsetuþróuninni og má vera að það sé áhyggjuefni. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að fólk eigi að fá að búa þar sem það vill búa og þó eigi svo að vera að mönnum sé ekki mismunað, menn eigi sín tækifæri og það sé æskilegt út af fyrir sig að byggð sé um landið allt. En ég vil líka koma að því að ég tel að starf það sem unnið hefur verið að byggðamálum á undanförnum árum hafi mistekist alveg hrapallega og tek undir orð forsrh. um það sem kom fram í einhverjum fjölmiðlanna. Reyndar hefur hann stjórnað því starfi sjálfur mestallan tímann og var því athyglisverð sú viðurkenning sem þar kom fram.
    Byggðastefnan eins og hún birtist mér þar sem ég bý hefur einkum verið fólgin í því að mismuna landsvæðum á þann hátt að --- ja, ég vil taka t.d. Suðurnesin. Ég tel að það hafi mjög á þau hallað í þessu starfi og er það bersýnilegt af því að þar eru um 300 manns atvinnulausir árið í gegn. Ef ekki væri byggt á atvinnutækifærum sem verða til vegna starfsemi erlendra manna, þá væri þar afar erfitt um vik í öllu fyrir fólkið sem þar býr.
    Ég tel að í byggðamálum þurfi menn að stefna burt frá því sem verið hefur, að moka milljónum, milljónatugum, milljónahundruðum í ákveðin fyrirtæki og ákveðin byggðarlög án þess að menn viti hvað þeir eru að gera. Það er allt of mikið af slíku og það á ekki að eiga sér stað á meðan önnur byggðarlög eru svelt. Slík byggðastefna mun ekki hafa neitt jákvætt í för með sér annað en að mismuna þegnunum og ég hélt að á Alþingi ættu menn ekki að stunda slíka hluti.
    Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um þetta plagg. Ég tel það fullt af lofti. Það er þó jákvætt að ætla, ef það verður að veruleika, að skilgreina það hvar byggðakjarnarnir eigi að vera. En ég tel að þær tillögur sem hér liggja frammi í frumvarpsformi séu

óþarfar. Allt sem þar kemur fram sé hægt að framkvæma samkvæmt gildandi lögum. Ástæðan fyrir því að þetta er flutt núna er fyrst og fremst sú að það eru kosningar í nánd og menn þurfa að sýna það að þeir hafi gert eitthvað, en það skiptir engu máli að mínu mati það sem gert hefur verið. Eigi menn að ná saman um byggðastefnu sem verður fólkinu í landinu til hagsbóta, þá þarf starf sem lýtur að umræðum um byggðamál að vera markvissara, boða tillögur sem eru skýrar og auðveldar í framkvæmd og boða það hvernig á að fá fé til þess að mæta þeim tillögum. Þetta frv. gerir það ekki. Þetta frv. breytir engu um það hver byggðastefna verður í landinu á næstu árum.