Karl Steinar Guðnason :
Virðulegi forseti. Ég þurfti að bregða mér frá vegna nauðsynja og hafði fengið leyfi forseta til þess í upphafi þessara umræðna. Ég hef því ekki getað hlustað á allt sem hér hefur verið sagt. En ég vil aðeins árétta það sem ég sagði áðan að ég tel að frv. sem slíkt breyti engu í byggðastefnu landsmanna og sé í raun og veru óþarft. Hér er kveðið á um hluti sem hægt er að framkvæma með núgildandi lögum. Ef það hefur ekki verið gert, sem virðist staðreynd, er þetta frv. botnlaus gagnrýni á stjórn Byggðastofnunar eins og hún er samansett í dag.
Hvað varðar svokallaða skýrslu, þá endurtek ég það að þetta er óskalisti sem er meira af lofti en nokkuð annað. Ég tel að þessi mál þurfi mikið meiri umræðu, það þurfi að ná sátt milli landsbyggðar og þéttbýlis, það þurfi að ná sátt milli landsmanna allra um það hvernig eigi að deila þessari köku sem stundum er nefnd þjóðarkakan. Við þurfum að ná sátt um það að mönnum sé ekki mismunað, byggðarlögum, fyrirtækjum, sem ég fullyrði að hafi verið gert í núverandi byggðastefnu. Takist að ná sátt, sem ég held að ætti að vera hægt með betri umfjöllun en kemur fram í svona óskalista, sem ekki á að koma fram núna heldur kannski fyrir næstu jól, þar sem óskir eru gjarnan settar fram á þeim tíma.
Ég fór nokkrum orðum um ýmis efnisatriði í þessari skýrslu, sem reyndar er fylgiplagg. Ég tel að það vanti í hana leiðir til þess að framkvæma það sem óskað er eftir og hvernig eigi að útvega fjármagn til að koma málum í framkvæmd. (Gripið fram í.) T.d. til að auka eiginfjárstöðu Byggðastofnunar og jafnhliða því, ef á að efla Byggðastofnun, hlýtur væntanlega að þurfa að setja peninga í einhver verkefni.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta, en það er með mig eins og Stefán Guðmundsson að mér er ekki sama hvernig mitt hérað lítur út. Mér er ekki sama um hvernig með þessi mál er farið. Ég tel að byggðastefnan sem rekin hefur verið undanfarin ár hafi komið illa niður á mínu héraði að nauðsynjalausu. Þar hafi mönnum verið mismunað í meira og minna mæli, fyrirtækjum og einstaklingum, það tekur langan tíma að skýra frá því. Menn horfa líka á hvað hefur gerst í öðrum landshlutum þar sem milljónatugir eru settir í fyrirtæki sem hafa verið gersamlega vonlaus. (Gripið fram í.) Ég er að tala um sjávarútveginn á Suðurnesjum m.a. sem hefur orðið fyrir barðinu á byggðastefnunni. Þú ert kannski einn þeirra, hv. þm., sem álíta atvinnumál á Suðurnesjum utanríkismál. Það kom reyndar fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens, að atvinnumál á Suðurnesjum voru sett undir utanríkismál. Mér þótti það mjög miður og ég lít ekki á þau mál þannig, en eftir frammíköllum hv. þm. að dæma virðist hann líta á atvinnumál á Suðurnesjum sem utanríkismál.
Það er engin tilviljun að þetta er sett fram núna. Brtt. sem koma fram í frv. breyta engu í rauninni. Skýrslan er ekki nærri því eins unnin og hún þyrfti að vera. Þar fylgir vafalaust góður hugur máli en meira
þarf til, bæði til að ná sáttum og til þess að móta skynsamlegar tillögur sem unnt er að framkvæma.