Karvel Pálmason :
Virðulegur forseti. Ég skal nú ekki lengja þessa umræðu mikið, enda kannski flest sagt sem segja þarf í þessu máli. Við 1. umr. gerði ég grein fyrir mínum viðhorfum til þessa máls og tel að ég hafi gert það með þeim hætti að varla þurfi miklu þar við að bæta. Það er auðvitað staðreyndin að með þessu frv. er ekki verið að leysa nema lítinn hluta af þeim vanda sem fyrir er. Það verður með einhverjum ráðum að grípa til annarra hluta, þó að það verði síðar, því að hér er ekki verið að taka á öllum vandanum.
Eins og fram hefur komið stend ég að nál. á þskj. 763 ásamt hv. þm. Skúla Alexanderssyni. Hann hefur gert ítarlega grein fyrir okkar viðhorfum í þessu máli og ég þarf ekki að eyða neinum orðum þar frekar að. En ég stend líka að brtt. ásamt Skúla og hv. þm. Margréti Frímannsdóttur, sem er á þskj. 753, og einnig að brtt. á þskj. 755, sem er frá Margréti Frímannsdóttur, Karvel Pálmasyni og Skúla Alexanderssyni, og að síðustu að brtt. á þskj. 754 sem ég er 1. flm. að.
Brtt. á þskj. 753 hafa verið gerð skil hér af 1. flm. og ég sé ekki ástæðu til þess að víkja frekar þar að. Ég held að það liggi ljóst fyrir hver meining manna er í þeim efnum. Sú meiningin er að menn taki kannski upp þráðinn aftur, þar sem frá var horfið á sínum tíma, með því að leggja allt sjóðakerfið niður. Ég heyrði það á sumum gestum sem komu til nefndarinnar að þeir töldu það víxlspor á þeim tíma að fara þá leið að leggja þetta allt til hliðar og hafa ekkert í að grípa þegar til vondu áranna kæmi. Auðvitað er það svo að það hefur margoft sýnt sig í þessu sveiflukennda þjóðfélagi okkar að því er varðar fiskveiðar og fiskvinnslu, þá er nauðsyn að einhvers staðar sé eitthvað til að grípa í þegar hin mögru ár ganga yfir. Öðruvísi verður þessu ekki stjórnað farsællega.
Hinar brtt. tvær sem á eftir koma eru í tengslum við þetta. Verði brtt. á þskj. 753 samþykkt, þá koma hinar að sjálfsögðu ekki til atkvæða en að henni felldri hygg ég að tillögurnar komi báðar, hvor af annarri, til atkvæðagreiðslu.
Ég vil lýsa því yfir að ef frv. verður samþykkt eins og meiri hl. nefndarinnar leggur til, með að vísu einni brtt., þá mun ég greiða atkvæði gegn frv. Ég tel það svo óburðugt til þess að standa í að komast fyrir þann vanda sem þegar er orðinn. Ég tala nú ekki um ef hann eykst enn frekar, sem miklar líkur benda til að verði. Þess vegna hefði, að minni hyggju, verið betra að líta yfir heildarsviðið og komast að svipaðri niðurstöðu og við hv. þm. Skúli Alexandersson höfum greint frá í þinginu, ekki bara núna heldur við umræðurnar um Hagræðingarsjóðinn á sínum tíma. En það er greinilegt að hér hefur meiri hluti skapast fyrir frv. sem hæstv. sjútvrh. hefur hér lagt fram. Við því er auðvitað ekkert að gera. Hér ræður vilji meiri hlutans, hver sem hann er hverju sinni. En ég vildi með þessum örfáu orðum gera grein fyrir mínum viðhorfum að því er málið varðaði núna.