Slysavarnaskóli sjómanna
Mánudaginn 04. mars 1991


     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Ég verð að lýsa því að ég harma mjög að lagt skuli til að ákvæði 3. gr. frv. sé fellt út.
Ég vildi biðja hv. nefnd að kanna áður en 3. umr. fer fram hvort ekki væri hægt að breyta textanum eins og hann er í 3. gr. frv. í þá veru að menn sem skrá sig í skipsrúm hljóti einhverjar lágmarksupplýsingar um slysavarnir áður en þeir leggja úr höfn. Ég held að við sem höfum búið við sjó og kynnst sjómennsku af eigin raun eða okkar nánustu höfum fengið okkur alveg fullsödd af því hvernig búið er að mönnum sem skrá sig á skip hvað varðar lágmarksslysavarnir. Mætti halda um það langa ræðu. En ég ætla ekki að fara að setja hér á ræðuhöld um ýmis mál því tengd, eins og t.d. flotgalla og annað slíkt. Það getur átt heima í annarri umræðu sem e.t.v. fer fram á fimmtudaginn kemur, en ég held að það geti ekki verið neitt vandamál að þeir sem skrá sig á skip undirgangist einhverja lágmarksupplýsingu um hvernig forðast má slys. Þó að mönnum hafi kannski þótt þessi grein hér taka til of mikils í fyrstu umferð, þá held ég að það hljóti að vera hægt að breyta henni þannig að menn fái einhverja lágmarksfræðslu um það við hverju þeir mega búast.