Páll Pétursson :
Frú forseti. Ég vil biðja menn að halda gleði sinni. Við töpuðum einni lítilli kosningu. Sósíaldemókratar vildu ekki styðja Sighvat Björgvinsson til formennsku í einhverri fastanefnd Norðurlandaráðs. Íslenska sendinefndin stóð að sjálfsögðu með Sighvati, enda hefur hann rækt starf sitt sem nefndarformaður í laganefnd Norðurlandaráðs með mikilli prýði og það var engin ástæða til þess fyrir okkur annað heldur en bakka hann upp af því afli sem við höfðum. Ég held að við eigum ekki að gera of mikið úr þessu eða vera of niðurdregin yfir þessum úrslitum. Það gengur bara betur næst.
Hér hefur verið um að ræða samstarf fimm jafnrétthárra þjóðþinga. Aukið flokksræði sem nú ryður sér til rúms í norrænu samstarfi er varasamt fyrir okkur Íslendinga og aðstaða okkar versnar við það. Við vorum beittir hálfgerðum bolabrögðum þarna og við verðum að taka á móti til þess að það endurtaki sig ekki og búa okkur betur undir næstu kosningu.
Ég held að það sé ekki hættulegt að breyta skipulaginu ef við komum því nógu rækilega til skila að við látum ekki ganga yfir okkur eins og gert var þarna. Ég vil láta það koma fram að við vorum ekki alveg rúnir trausti jafnvel þó að við töpuðum þessari nefndaformennsku. Það er um 16 sérstakar trúnaðarstöður að ræða hjá Norðurlandaráði. Við Íslendingar höfðum þrjár af þeim fyrir þingið eða á síðasta kjörtímabili en nú aðeins tvær, þ.e. við höfum tvær stöður varaforseta í ráðinu.
Ég held að við megum ekki gera of mikið úr þessu og mikla þetta um of fyrir okkur, en það er fullkomin ástæða til þess að koma því rækilega til skila að við unum ekki þeirri aðferð sem þarna var beitt og munum ekki láta það yfir okkur ganga að flokksræðið fari svona með okkur. Við þurfum að gæta að hagsmunum íslensku sendinefndarinnar og þá jafnframt Alþingis, að hagur þess verði ekki fyrir borð borinn.