Breyttir starfshættir Norðurlandaráðs
Mánudaginn 04. mars 1991


     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. 1. þm. Reykn. fyrir að taka þetta mál upp hér utan dagskrár og jafnframt hæstv. samstarfsráðherra fyrir að fara hér með gát.
    Norrænt samstarf hefur verið einstakt að því leyti að þar hafa Norðurlandaþjóðirnar unnið saman, án tillits til stærðar og mannfjölda, á jafnréttisgrundvelli sem er mjög mikilvægt atriði og gerði Norðurlandaráð mjög sérstakt. Þeir atburðir sem nú hafa gerst hafa vissulega vakið athygli forseta Alþingis og við höfum þegar boðað til fundar á morgun um þetta mál. Skoðun okkar er sú að hér sé ekki um að ræða mál sem varða Íslandsdeildina eingöngu heldur þingið allt.
    Persónulega var mín skoðun frá upphafi sú að þessi flokkapólitíska skipting Norðurlandaráðs væri röng og ég vil minna menn á að um það skrifaði ég grein í Nordisk Kontakt fyrir nokkrum árum. Það er auðvitað alveg ljóst að flokkaskiptingin eins og hún hefur verið um árabil hefur verið með kyndugra móti varðandi ýmsa þá flokka sem í Norðurlandaráði eiga sæti og nægir að nefna smáskrýtið samstarf hinna róttæku sósíalísku flokka um tíma þar sem þeir virtust nú vera eins ólíkir eins og þeir voru margir og svo hygg ég að sé um fleiri. Ég vil því ítreka það að hér held ég að verði að spyrna við fæti strax og ég held að hið háa Alþingi eigi að sýna fram á alvöru þess máls að við teljum ekki samstarf Norðurlanda hið sama eftir ef svo fer sem nú horfir. Og ég vil taka undir með hv. 3. þm. Austurl., þetta er óneitanlega ofurlítill forsmekkur af því sem koma skal og þar held ég að við eigum að vera á verði.