Breyttir starfshættir Norðurlandaráðs
Mánudaginn 04. mars 1991


     Ragnhildur Helgadóttir :
    Frú forseti. Ég vil taka undir þær þakkir sem hv. fummælanda hafa verið færðar fyrir að vekja máls á þessu atriði. Ég er þeirrar skoðunar að þetta sé afar mikilvægt fyrir Alþingi Íslendinga og löggjöf hér á landi. Við skulum ekkert gleyma því hve mikið hefur áunnist í íslenskri löggjöf áratugum saman og þó lengra aftur jafnvel, einmitt vegna hins norræna samstarfs og það er tilgangur og það er eðli Norðurlandaráðs. Það liggur í hinu íslenska heiti þess að þetta er samstarf ríkja en ekki samstarf flokka. Ef þetta ætti að færast yfir í flokkana og vera áfram samstarf ríkja, þá yrðu jafnvel öll löndin að hafa jafnmarga fulltrúa í sendinefndunum, en svo er auðvitað alls ekki og það leggjum við ekki til. En það er alveg ljóst að flokkahlutföllin verða alls ekki sönn að óbreyttum fjölda í landsnefndum. Þau verða ekki í samræmi við hlutföll flokkanna á þjóðþingunum, síst þeirra sem hafa fáa fulltrúa ef þessi leið verður farin. Þess vegna tek ég undir þær tillögur sem fram komu í máli hv. þm. Ólafs G. Einarssonar, að það yrði sett í reglur ráðsins hvernig nefndaformennska skiptist á ríkin. Þetta hafa verið óskráðar reglur hingað til, en það hefur þótt sjálfsagt. Það eru að vísu orðin nokkuð mörg ár síðan ég tók þátt í þessu samstarfi, en það fann ég alla tíð, eins og reyndar allir aðrir, að ég held, sem hafa unnið í Norðurlandaráði, að mikilvægi þessa vettvangs fyrir okkur fólst í því að við stóðum þar jafnfætis hinum ríkjunum og það var alla tíð viðurkennt. Ég tel að það skipti mjög miklu máli að sú skipan haldist og þess vegna styð ég þær hugmyndir sem hér hafa komið fram í þá veru.