Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) :
Virðulegi forseti. Ég var fjarverandi, eins og kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda, þegar þetta var lagt fram í ríkisstjórninni og hef ekki haft mikinn tíma til að kynna mér þessi mál. En ég svara fyrstu spurningunni þannig að ríkisstjórnin hefur ekki tekið ákvörðun um að afskrifa undirbúning álvers. Hins vegar hefur það komið mjög greinilega fram í bréfi Landsvirkjunarstjórnar að nokkur frestur muni verða þar á vegna þess að samningar dragist á langinn. Landsvirkjunarstjórn hefur sagt að hún telji ekki rétt að ráðast í mjög umfangsmiklar framkvæmdir fyrr en samningar eru í hendi. Hins vegar hefur stjórn Landsvirkjunar lýst því að rétt sé að halda undirbúningi áfram með nokkurri fjárhæð og ég geri ráð fyrir því að það verði rætt í tengslum við afgreiðslu lánsfjárlaga.
Önnur spurningin: Hefur ríkisstjórnin þess í stað tekið ákvörðun um að verja allt að tveimur milljörðum til opinberra framkvæmda umfram fjárlög og lánsfjárlagafrv.? Nei. Ríkisstjórnin hefur ekki tekið neina ákvörðun um slíkt. Hins vegar hefur komið fram að vegna loðnubrests mun hagvöxtur verða minni heldur en gert var ráð fyrir og atvinnuleysi e.t.v. eitthvað meira, eins og ég hygg að hafi komið fram hjá hæstv. fjmrh. í þeirri tillögugerð sem hann flutti ríkisstjórninni. Þjóðhagsstofnun telur að atvinnuleysi kynni að verða 1,9%. Og alveg sérstaklega í tengslum við erfiðleika vegna loðnubrestsins hefur verið minnst á að e.t.v. mætti flýta einstökum framkvæmdum, t.d. á Siglufirði, og það hefur verið til athugunar hjá Byggðastofnun.
Þriðju spurningunni hlýt ég að svara þannig að það er að sjálfsögðu í verkahring einstakra ráðherra að gera tillögur um auknar framkvæmdir á viðkomandi sviðum. Á það sem þar er sérstaklega talið upp hefur verið minnst í einstökum tilfellum, veit ég, á milli ráðherra, en það hefur ekki verið tekið formlega fyrir í ríkisstjórninni.
Fjórða spurningin var um hvort þetta sé á vegum ríkisstjórnarinnar í heild. (Forseti hringir.) Virðulegi forseti. Ég verð að svara þessum spurningum með því að fara aðeins fram yfir, enda þeim beint til mín. Varðandi fjórðu spurninguna þá hefur ríkisstjórnin ekki undirbúið neina tillögugerð á þessu stigi. En eins og ég nefndi áðan í sambandi við undirbúning undir álbræðslu og e.t.v. eitthvað annað vegna loðnubrestsins, þá er ekki ólíklegt að slíkar tillögur komi fram í tengslum við afgreiðslu lánsfjárlagafrv.