Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
Virðulegi forseti. Að gefnu tilefni er ástæða til að minna á að hvorki í forsendum fjárlaga né lánsfjárlagafrv. né heldur í forsendum þjóðhagsspár var gert ráð fyrir sérstökum útgjöldum vegna álvers eða virkjanaframkvæmda. Menn skyldu því varast að álykta sem svo að nú hafi allt í einu skapast eitthvert sérstakt svigrúm af því tilefni.
Í annan stað er ástæða til að minna á að það er engin ástæða til þess að slá því föstu að ekki verði hafist handa um undirbúning vegna álversins af þeirri einföldu ástæðu að nú hefur þeirri óvissu sem ríkti vegna Persaflóastríðsins verið eytt. Má búast við því að aðrar forsendur á orkumörkuðum breytist og að stöðugleiki verði vaxandi á fjármagnsmörkuðum. Fyrir liggur staðfest viljayfirlýsing um að halda málinu áfram, stefna að því að ljúka málinu í maí, og vel má vera að það takist að leysa fjármögnun, eins og eitt af samstarfsfyrirtækjunum, Grängers, hefur þegar getað gert miklu fyrr en svartsýnir menn gerðu ráð fyrir í upphafi. Áætlun um það hvað eigi að koma vegna einhverrar frestunar á þessum framkvæmdum er því e.t.v. alls ekki tímabær.
Þá er þess að geta að gefnu tilefni líka að því er varðar byggingu flugskýlis á vegum Flugleiða að erindi um það --- málið er að vísu gamalt --- hafa verið send fjmrn. frá varnarmálaskrifstofu utanrrn. á sl. sumri ein þrjú eftir því sem best verður séð og það er auðvitað framkvæmd sem var ástæða til að leita heimilda til í 6. gr., en því miður fékkst ekki samkomulag um lausn á því máli þá. Meginatriðið er þetta: Það var ekki gert ráð fyrir því í forsendum fjárlaga, lánsfjárlaga og fjárhagsáætlunar um að verja þarna verulegu fé sem nú ætti allt í einu að vera fallið frá.