Afgreiðsla lánsfjárlaga
Mánudaginn 04. mars 1991


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Ég vil minna á það að í tengslum við afgreiðslu fjárlaga var aflað lánsfjárheimilda sem duga fyrir fyrstu mánuði þessa árs þannig að eðlilega var tekið á málum. Lánsfjárlagafrv. hefur hins vegar verið, eins og hér hefur komið fram, lengi til umfjöllunar í hv. Nd. Ég ætla ekkert að fara að ræða um það hér hvers vegna það sé. Menn eru þar önnum kafnir og hafa mörgu að sinna. Síðan hafa verið að koma fram hugmyndir um ýmislegt sem menn vildu skoða áður en lánsfjárlagafrv. yrði endanlega afgreitt. Ég hef þess vegna talið eðlilegt að það yrði endanlega afgreitt á síðustu dögum þingsins.