Afgreiðsla lánsfjárlaga
Mánudaginn 04. mars 1991


     Þorsteinn Pálsson :
    Frú forseti. Fyrst mitt nafn bar hér á góma varðandi afgreiðslu lánsfjárlaga fyrir jól vil ég taka fram hvers vegna við sjálfstæðismenn töldum ógerlegt að afgreiða lánsfjárlagafrv. eins og það þá stóð. Hv. 14. þm. Reykv. hefur að vísu gert hér skilmerkilega grein fyrir því. Ástæðan var auðvitað sú að lánsfjárlagafrv. var hálfkarað og langt frá því að vera fullunnið af hálfu hæstv. ríkisstjórnar. Á síðustu dögum fyrir jólaleyfi í önnum þingsins létum við það álit í ljós að það skyti nokkuð skökku við að ætla að fara að afgreiða frv. sem væri hálfkarað af hálfu hæstv. ríkisstjórnar og svo bar við að hæstv. ríkisstjórn viðurkenndi það sjálf að hún væri ekki tilbúin til að afgreiða þetta mál og taldi rétt að láta það bíða frekari vinnu og umfjöllunar á nýju ári.
    Nú vitum við að það er komið fram í marsmánuð og hæstv. ríkisstjórn hefur ekki komið málinu fram enn. Það sannar enn betur að við höfðum rétt fyrir okkur og lögðum rétt mat á það að hæstv. ríkisstjórn hafði ekki unnið sína heimavinnu. Og það er auðvitað alveg út í bláinn þegar hæstv. fjmrh. er svo að reyna að gera því skóna að stjórnarandstaðan hafi stöðvað framgang stjórnarfrumvarpa hér fyrir jólaleyfi.
Í fyrsta lagi hefur ríkisstjórnin meiri hluta í þinginu til þess að koma fram þeim málum sem hún kýs og í öðru lagi liggur einfaldlega fyrir viðurkenning á því af hálfu hæstv. ríkisstjórnar að hún var ekki tilbúin með þetta mál sem eðlilegt hefði verið að afgreiða fyrir jól samhliða fjárlögum eins og venja stendur til. En einmitt þetta sýnir hvers konar lausatök eru hér á málum af hálfu hæstv. ríkisstjórnar að geta ekki tekið á slíku máli. Alvarlegast er auðvitað það þegar hæstv. ríkisstjórn er að reyna að breiða yfir eigið getuleysi og koma sök á aðra í þessu efni sem sitja hér í minni hluta á þinginu.