Einkaleyfi
Þriðjudaginn 05. mars 1991


     Frsm. iðnn. (Karl Steinar Guðnason) :
    Virðulegi forseti. Iðnn. hefur fjallað um frv. til laga um einkaleyfi.
    Nefndin fékk á sinn fund til viðræðna um málið Gunnar Guttormsson, forstöðumann vörumerkja- og einkaleyfadeildar iðnrn., Ómar Grétar Ingvarsson, verkfræðing í sömu deild, og Árna Vilhjálmsson, formann Samtaka áhugamanna um vernd eignarréttar á sviði iðnaðar.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt eins og það var afgreitt frá neðri deild og er það hér með lagt til.