Grunnskóli
Þriðjudaginn 05. mars 1991


     Árni Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Það var ekki ætlun mín að taka aftur til máls í þessu máli en það er ekki nokkur möguleiki að sitja þegjandi undir ræðu á borð við ræðu þá sem hv. 12. þm. Reykv. flutti hér fyrr í dag. Og raunar þarf ég að gera athugasemdir við ýmislegt sem kom fram í ræðu hæstv. menntmrh. fyrr í þessari umræðu.
    Það er ekki svo að með því að gera athugasemdir við þetta merkilega frv. vilji sá sem hér stendur draga úr líkunum á því að það verði afgreitt hér á hv. þingi. Hins vegar tel ég alveg bráðnauðsynlegt að menn geri sér ljósa grein fyrir því í þessari umræðu hvað verið er að samþykkja, ekki fyrir hönd ríkisvaldsins eða ríkissjóðs heldur sveitarfélaganna í landinu. Það nær auðvitað ekki nokkurri átt að fólk og hv. þm. sem hér ræða þessi mál skuli ekki gera sér grein fyrir því að með samþykkt þessa frv. er verið að leggja stórfelldar álögur á sveitarfélögin.
    Ég gat ekki skilið hæstv. menntmrh. öðruvísi en svo að þetta frv. væri ekki viðbót við þau framlög sem sveitarfélög væru með í skólamálum almennt. Ef ég hef skilið ræðu hans rétt, þá var ekki annað á honum að heyra en frv. mundi jafnvel hafa í för með sér lækkun á framlögum til skólamála. Hæstv. ráðherra getur auðvitað leiðrétt það ef þetta er ekki rétt eftir honum haft, en einfaldast er auðvitað að fara í ræðuskrif og kanna hvað hann hefur sagt berum orðum.
    Ég hef borið það undir skólamenn í sveitarfélögum í tveimur kjördæmum á landinu, sem hafa kynnt sér þetta frv., hvað það hafi í för með sér í kostnaðarauka fyrir sveitarfélögin. Þeir geta ekki svarað upp á krónu hver kostnaðaraukinn er. En þeir fullyrða að kostnaðaraukinn verði verulegur. Það er t.d. fullyrt við mig að kostnaðarauki vegna skólahalds á Selfossi skipti tugum milljóna. Ég vil að hv. þm. geri sér grein fyrir þessu því að ég reikna ekki með því að þeir hv. þm. sem segja að þetta kosti ekki neitt þurfi að sjá fyrir þeim fjármunum sem þurfa að fara í þetta mál þegar upp er staðið. Það er nefnilega þannig að ábyrgðin á málinu gengur að stórum hluta yfir á sveitarfélögin. Ég vil í þessu sambandi minna á umsögn Sambands ísl. sveitarfélaga sem barst til hv. menntmn. þessarar deildar. Þar er tekið fram mjög skýrt að sambandið
hefur áhyggjur af kostnaðaraukanum vegna frv. Það fer ekkert á milli mála í umsögn Sambands ísl. sveitarfélaga.
    Mig langar, virðulegi forseti, að vitna í hluta af umsögninni, m.a. umsögn um I. kafla frv., markmið og skólaskylda. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:
    ,,Í grg. með frv., 3. gr., er því haldið fram að allir skólar geti orðið einsetnir eftir tíu ár með svipuðu framkvæmdafé og lagt er fram á þessu ári. Þessi staðhæfing virðist því miður byggð á afar villandi forsendum, bæði hvað varðar stöðu mála nú og kostnað við skólabyggingar. Það er engum til góðs að setja slíkar fullyrðingar fram svo illa grundaðar.``
    Það má vel vera að þeir menn sem fara með stjórn

Sambands ísl. sveitarfélaga og stýra þeirri stofnun viti ekkert um þennan málaflokk. En ég er sannfærður um að þeir vita talsvert meira um þennan málaflokk heldur en margir hv. þm. sem hafa tekið þátt í umræðunum um grunnskólafrv. Ég tek meira mark á þessum mönnum sem standa í blóðugu stríði ár eftir ár til þess að framfylgja þeim lögum og reglum sem gilda um skóla á Íslandi vegna þess að framkvæmdafé er af svo skornum skammti og þarf að fara í svo marga staði að það hlýtur að koma einhvers staðar niður.
    Ég vil líka vitna í umsögn Sambands ísl. sveitarfélaga um VII. kafla frv., um réttindi og skyldur nemenda. Þar segir, með leyfi forseta: ,,Ekki er gerð athugasemd við meginstefnuna sjálfa en kveða þarf mun nánar á um kostnaðarskiptingu vegna þessarar kennslu og semja um hana við sveitarfélögin. Ekki verður á það fallist að ráðuneytið færi með þessu ýmsan kostnað frá sérskólum yfir til almennu skólanna, þ.e. sveitarfélaganna, svo sem flutningskostnað, kostnað af sérstakri umönnun, sérstökum útbúnaði, tækjum og fleiru.``
    Það er auðvitað rétt að taka það fram að hv. menntmn. hefur gert ýmsar brtt. sem koma til móts við þær athugasemdir sem gerðar hafa verið, en ég get ekki greint það í brtt. að þær komi til móts við þær áhyggjur sem sveitarfélögin hafa sett fram vegna aukins kostnaðar sem þau verði fyrir þegar frv. verður að lögum.
    Virðulegi forseti. Ég skal ekki reyna á þolrifin í hv. þm., enda þessi umræða orðin mjög löng. En mér finnst það, og segi það sem mína skoðun, gersamlega óþolandi þegar það gerist æ ofan í æ, og ég hef sagt það áður, að stórir lagabálkar eru keyrðir í gegnum Alþingi án þess að það liggi fyrir hver áhrif þessi lög hafa á t.d. kostnað sveitarfélaganna vegna framkvæmdar laganna. Þetta gildir um fleiri lög sem hér hafa verið afgreidd. Ég vil vitna til þess enn á ný að um það eru ákvæði í Ólafslögum að kostnaðaráætlun skuli fylgja frv. af þessu tagi. Ég benti á það í fyrri ræðu minni að það fylgdi kostnaðaráætlun sem hagsýslan hefur gert, en hún nær eingöngu til kostnaðar ríkissjóðs af frv. og lögunum. Og það sem meira er. Hér hefur ekki verið um það rætt einu stöku orði hver sá kostnaður verður sem fylgir því að hafa skólamáltíðir.
    Ég spyr nú hv. þingdeildarmenn: Væri það ekki vænlegra til árangurs í máli af þessu tagi að við vissum hvað við erum að samþykkja? Hvaða kostnaðarálögur við erum að samþykkja á sveitarfélögin? Því að það verður þeirra að afla fjármunanna sem þarf til þess að framfylgja þessum lögum. Og nógur er nú vandi þeirra samt, a.m.k. þeirra sveitarfélaga sem ég þekki til. Það er ekkert að marka Reykjavíkurborg sem veður fjármuni upp undir hendur og hefur nóg af peningum til allra hluta. En önnur sveitarfélög í landinu eiga erfiðara uppdráttar heldur en Reykjavík. Það eru sveitarfélög sem geta ekki sinnt lögboðinni þjónustu við íbúa sína vegna peningaleysis. Og ég vil þá heyra það að ríkisvaldið sé tilbúið til að greiða fyrir þessum sveitarfélögum á einhvern hátt svo að þau geti

framfylgt þeim lögum sem sett eru á Alþingi. Það gengur ekki að Alþingi Íslendinga geri það með lokuðum augum að samþykkja álögur á sveitarfélögin sem mörg hver geta ekki staðið undir þeim.
    Virðulegi forseti. Ég vænti þess að hæstv. menntmrh. geri okkur einhverja gleggri grein fyrir því áður en þessari umræðu lýkur hverjir verða kostnaðarliðir sveitarfélaganna í landinu vegna laganna. Það þýðir ekki að koma hér upp í ræðustól og fullyrða að kostnaðaraukinn verði enginn. Það stenst ekki. Ég mundi þá mælast til þess að það yrði leitað á nýjan leik umsagnar Sambands ísl. sveitarfélaga og fenginn útreikningur á kostnaðaraukanum. (Gripið fram í.) Má ég heyra aftur það sem hæstv. menntmrh. sagði? ( Menntmrh.: Ég mun segja það í ræðustól.) Ég er nú svolítið undrandi á viðbrögðum hæstv. menntmrh. því að ég hygg að ég hafi raunar heyrt rétt það sem hann sagði. Ef hann telur að það sé verið að tefja mál þegar þingmenn gera grein fyrir áhyggjum sínum vegna laga sem eru að fara hér í gegnum þingið, áhyggjum vegna þeirra sveitarfélaga sem þeir að hluta til bera ábyrgð á, þá þykir mér skörin vera farin að færast upp í bekkinn. Tel ég nú að aðrir hafi orðið til þess að tefja þetta mál meira en sá sem hér stendur.
    Ég ítreka það enn og aftur að ég tel það alveg nauðsynlegt að hv. þm. fái að vita hvaða kostnaðarauka þeir eru að samþykkja á sveitarfélögin í landinu.