Fullorðinsfræðsla
Þriðjudaginn 05. mars 1991


     Ragnhildur Helgadóttir (um þingsköp) :
    Herra forseti. Rétt í þessu var verið að boða kvöldfund. Það hlýtur að vera vegna þess hversu mörgum málum liggur á að koma í gegnum þingið svo þau megi verða að lögum. Mér telst svo til að rétt fimm eða sex fundardagar í deildum séu til áætlaðra þingloka. Hér hafa tveir hæstv. ráðherrar í dag fluttar ítarlegar framsöguræður og aðrir hv. þm. rætt um mál þeirra sem eru þess eðlis að það hlýtur að vera útilokað að Alþingi sé ætlað að taka þau alvarlega. Margt er gott í þeim málum þegar þau eru skoðuð hvert fyrir sig, en það er ljóst að þau rekast á í veigamiklum atriðum. Það skortir eitthvað á verkstjórnina í hæstv. ríkisstjórn þegar tveir hæstv. ráðherrar flytja hvor á eftir öðrum frv. um sama þátt menntamála sem á svo að heyra sitt undir hvort ráðuneyti. Það er útilokað að Alþingi geti tekið slíkt alvarlega og að hæstv. forseti ætlist til þess að nefndirnar vinni úr þeim málum á þeim tíma sem eftir er.
    Það fór langur tími í þessa umræðu í dag. Mér er alveg ljóst að það er ætlunin að ýta grunnskólafrv. áfram og þess vegna þótti okkur sjálfsagt að ræða það ítarlega, enda mjög mikilvægt. En þessi mál tvö, þó að þau fjalli um mikilvæg efni, standast ekki samtímis sem lög. Það get ég ómögulega séð. Og mér þykir það harla einkennilegt ráðslag af hæstv. ríkisstjórn að ætlast til þess að Alþingi fjalli á kvöldfundum um slík mál, eða ef ekki um þau mál þá um önnur, vegna þess að þau hafi ekki komist að fyrir slíkum málum sem útilokað er að hæstv. ríkisstjórn sé alvara með að Alþingi vinni eitthvað úr.