Fullorðinsfræðsla
Þriðjudaginn 05. mars 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Um þetta hefur forseti ekki margt að segja annað en það að hann hyggur að þessi mál fari bæði í sömu nefnd, --- nei, það er rétt, annað fer í hv. menntmn. og hitt fer í hv. félmn. Líklega verða þær nefndir að hafa eitthvert samráð um það hvort þessi frumvörp skarast eður ei. Hins vegar er sjálfsagður réttur hv. þm. að fá að ræða frumvörpin hér í deildinni og verður það nú gert.