Friðjón Þórðarson :
Herra forseti. Hér er til umræðu frv. til laga um breyting á lögum um ábyrgðadeild fiskeldislána, nr. 17 3. apríl 1990. Þó að frv. þetta sé flutt af níu hv. alþm. og 1. flm., hv. 1. þm. Vestf., hafi þegar fylgt því úr hlaði af myndarskap og vel megi vera að hinir taki allir til máls, langar mig til að segja nokkur orð um frv. nú.
Ég held að hér sé á ferðinni mjög þýðingarmikið og tímabært frv. Við munum eftir því að fyrir nokkrum árum var mikið rætt um nýbúgreinar hér á landi og þá aðallega loðdýrarækt og fiskeldi. Loðdýraræktin hefur lent í gífurlegum erfiðleikum svo að ekki sér fyrir endann á því máli. Fiskeldið hefur líka lent í miklum vandræðum svo að fjöldamargir sem lagt hafa út í fiskeldi hafa orðið að leggja árar í bát, sigla inn í gjaldþrot og gefast upp. Það er rétt einn og einn sem hefur þraukað að segja má fram á þennan dag. Ég nefni sem dæmi vin minn Jón Sveinsson í Lárósi á Snæfellsnesi sem af óbilandi áhuga, dugnaði og bjartsýni hefur haldið áfram árum saman að vinna að uppbyggingu þessarar búgreinar.
Frv. þetta er flutt, að því er segir í greinargerð, ,,til þess að bæta úr þeim gífurlegu vandamálum sem fiskeldisfyrirtæki eiga við að stríða.`` Þetta er síst orðum aukið. Það er einnig bent á það í greinargerðinni að á fundi ríkisstjórnarinnar í júnímánuði 1989 hafi verið samþykkt að láta fara fram athugun á því að veita öllum starfandi fiskeldisstöðvum bústofnskaupalán en lítið hafi í þessum málum gerst og nú sé þessi atvinnugrein, þessi blómlega framtíðaratvinnugrein, að komast í algert þrot.
Það er einnig vikið að því í greinargerð að miklar vonir hafi verið bundnar við það þegar ábyrgðadeild fiskeldislána loks komst á laggirnar 1. júlí 1990. En ekki var haldið nógu sterklega á þessum málum og raunin varð sú að starfsemi ábyrgðadeildarinnar varð ekkert nema vonbrigði. Þannig mætti lengi halda áfram að tala um málið, en eigi að síður viðurkenna menn, og í raun og veru verða að binda vonir við það, að þetta sé framtíðarbúgrein sem eigi mikla og glæsta framtíð fyrir sér, því að hvar stöndum við ef svo verður ekki?
Ég ætla ekki að hafa um þetta mörg orð en ég vil benda á það að í athugasemdum við 7. gr. frv. segir að í lögunum um ábyrgðadeild fiskeldislána sé svo mælt fyrir að lögin falli úr gildi í árslok 1999. Hér er lagt til að ,,sólarlagsákvæðið`` falli brott. Ég vona að flutningur og framgangur þessa frv. verði til þess að leysa einhvern vanda í þessari búgrein svo hún megi lifa til framtíðar og þurfi ekki að horfa fram á sólarfall að sinni.