Ábyrgðadeild fiskeldislána
Þriðjudaginn 05. mars 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Nú vill forseti láta þess getið að hann hafði ætlað að ljúka þessum fundi kl. 10.30. Hefði hann átt von á því að umræður um þetta dagskrármál yrðu eins langar og raun ber vitni, þá hefði hann frestað því að taka málið á dagskrá þessa fundar. Forseti vill hins vegar gefa öðrum hv. þingdeildarmönnum tækifæri til þess að ræða þetta mál nokkuð.