Stefán Valgeirsson :
Herra forseti. Þótt tilefni sé til að ræða þetta í nokkuð löngu máli ætla ég ekki að gera það. Hins vegar fannst mér hæstv. fjmrh. flytja sína ræðu eins og hann væri kominn í málþóf, hann hafi ekki áttað sig á því að hann er fjmrh. Og það sem verra er, hæstv. ráðherra, allt sem hann sagði er rugl, sem ég skal koma að síðar.
Áður en ég kem að því vil ég þakka hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni fyrir að vera upphafsmaður í að flytja þetta frv. og hvað hann hefur sett sig inn í þessi mál sem kom berlega fram í hans framsöguræðu. Það hefði farið betur á því að fleiri hefðu gert áður en þeir töluðu, þar á meðal hæstv. fjmrh.
Þegar ábyrgðasjóðurinn var stofnaður ráðlagði ég hæstv. fjmrh. að gera það ekki á þennan veg vegna þess að ég hafði enga trú á því að verið væri að stíga spor fram á við frá því að Tryggingarsjóður fiskeldislána var. Svo leyfir hæstv. ráðherra sér að segja: Það bara skiptir engu máli um kostnaðinn, það skiptir engu máli hverjir vextirnir eru. Það skiptir ekki máli, það er ekki fyrir það að fjármagnskostnaðurinn sé mikill þó að það séu dráttarvextir mánuð eftir mánuð. Hvers konar rugl er þetta? Eru menn að tapa hér áttum?
Ráðherrann taldi að flm. mundu ekki þora að horfast í augu, líklega við hann og í augu við frv., eins og hann komst að orði. Ég þori a.m.k. að gera það, hvort tveggja. Sannleikurinn er sá auðvitað að fiskeldi á Íslandi hefur lent í hremmingum. Það hefur ekki verið farið rétt af stað í mörgum tilvikum. Það er rétt. En aðrir hafa farið öðruvísi að. Líklega mundi vera búið að afskrifa allt fiskeldi á Íslandi ef stjórn Byggðastofnunar hefði ekki skilið málið. En hvar fær hæstv. fjmrh. þær upplýsingar sem hann gefur þingheimi? Hvar fær hann þær? Allt rugl eins og það leggur sig og það skal ég sýna honum fram á. Og það er alveg hörmulegt að ráðherrann skuli ekki hafa talað við einhvern sem hefur vit á þessum málum áður en hann flutti sína endemisræðu.
Ýmsir menn sáu hvert stefndi með fiskeldið víðast hvar vegna þess hvað fjárfestingin var mikil, hvernig var að þessu staðið og ýmsir höfðu ekki trú á því að sjókvíaeldi mundi ganga á ýmsum þeim stöðum þar sem það fór af stað. Sá sem hér stendur aðvaraði ýmsa menn í því efni. En það voru til menn sem höfðu trú á því að þetta væri framtíðaratvinnuvegur á Íslandi. Og þá kem ég að því að hrekja það sem ráðherrann sagði.
Í þeirri fiskeldisstöð sem ég þekki best var sett í eldiskerin fiskur af stærðargráðunni 100 -- 150 grömm í ágúst 1989. Þessum laxi var slátrað 10 mánuðum seinna. Það var íslenskur stofn og hvað var laxinn þungur? Sumt af honum var að vísu, en lítill hluti, milli 2 og 3 kg. En hann fór upp í 4, 5 og 6 kg. Það voru ekki nein hrogn í þessum íslenska stofni. Síðan var sett í stöðina seint á árinu 1989, þá 65 grömm. Þeim laxi er verið að slátra nú og stærðin er --- nú ráðlegg ég ráðherranum að halda sér við stólinn ---
allur yfir 4 kg og á bilinu 5, 6, 7, 8, 10 og 12 1 / 2 kg þeir þyngstu.
Það er líka rangt hjá ráðherranum, það er norskur stofn til. Þetta er íslenskur stofn og sú stöð sem ég er að tala um hefur þennan stofn einnig. Það er búið að athuga gæði þessa lax sem þarna var slátrað úti í Noregi. Það kemur á daginn að prófessorinn sem stjórnar skólanum í Tromsö hefur sagt að gæðin væru meiri í íslenska laxinum en í þeim norska. Hitt er allt annað mál að þegar er verið að þvæla þessum laxi í kannski 2 -- 3 ár, eins og ég veit að hefur komið fyrir, þá eru það allt önnur vara.
Svona er nú þetta og ég sé ástæðu til þess að bjóða hæstv. fjmrh. að koma í þessa stöð og sjá af eigin raun hvernig þetta er allt saman. Þá mun hann sjá að sá lestur sem hann var með hér áðan, og ég veit að hann hefur einhvers staðar frá, ekki hefur hann verið í laxeldi, er frá fólki sem ekkert veit hvað það er að segja. Vegna þess að stjórn Byggðastofnunar hefur skoðað þessa stöð veit hún hvað hún er að gera. Hún hefur trú á því. Þarna í tveimur sveitarfélögum væri hægt að framleiða fleiri tugi þúsunda tonna ef stjórnvöld hefðu skilning og þekkingu á þessu máli.
Hvers vegna er ekki tryggt? Það er vegna þess að það þýðir ekkert. Það þurfa að vera svo stór óhöpp til þess að fá eitthvað út. Það er bara til þess að kasta peningum út um gluggann. Það hefur aðeins einu sinni orðið smávegis áfall í þessari stöð. Það var vegna þess að rafmagnið fór af og þá var ekki búið að setja það kerfi sem nú hefur verið og er alltaf vakt. Það er talin langtum meiri trygging að hafa vakt og hafa útbúnað þannig að vaktmaðurinn, þó hann sé inni, viti alveg hvað er að gerast í kerunum.
Það sem vakir fyrir flm., hæstv. ráðherra, er það að bæði í ríkisstjórn og í bönkunum hafa menn ekki trú á fiskeldi af því að þeir vita ekkert hvað fiskeldi er. Þeir vita um hrakfallasögu manna sem fóru út í þetta að lítt athuguðu máli og fengu erlenda sérfræðinga til þess að hanna fyrir sig og stjórna þessum framkvæmdum og borguðu fyrir það tugi milljóna, meira að segja á annað hundrað milljónir. En í þeirri stöð sem ég er að tala um var hönnunarkostnaðurinn aðeins yfir 2 millj. kr. En svona er nú hægt að standa að málum.
Ég vil í fullri vinsemd segja við hæstv. fjmrh., þó að mér fyndist einhvern veginn hann vera að æfa sig áður en hann fer í kosningafötin, að athuga þessi mál betur, finna aðra leið en nú er í sambandi við þessi afurðalán því það er verið að reyna að drepa þetta. Ef þessi umræða hefði ekki farið hér fram og ef hæstv. ráðherra kynnir sér ekki þessi mál, hvernig þau eru, hvernig þau geta verið og hvernig þetta gengur til því hann er gersamlega á villigötum, þá er ég viss um að hann stendur með þeim sem eru að reyna þetta og sannfærist um að allt sem hann sagði um þessa stofna er rangt, er misskilningur.
Ég verð auðvitað að játa að þessi stöð sem ég er að tala um hefur sérstaka aðstöðu. En það eru fleiri staðir sem hafa slíka aðstöðu. Menn eru að tala um stóriðju, menn eru að tala um að gera samninga við
fyrirtæki sem erlendir aðilar eiga og eru mengunarfyrirtæki og að borga útflutningsbætur á orkuna. Hvar á að taka peninga til þess? Hvar voru teknir peningarnir sem Tryggingarsjóður fiskeldislána fékk? Ég geri ráð fyrir því að það yrði á svipuðum nótum eins og það var þá. Og ef menn eru svo blindir, eru svo trúaðir á erlenda forsjá og hafa þá vantrú á möguleikunum sem þetta land hefur, þá eiga þeir að gera eitthvað annað en vera í ráðherrastólum eða bankastjórastólum. Mér finnst að það hefði verið nær fyrir ráðherrann að taka bankastjóra ríkisbankanna til bæna fyrir þá afstöðu sem þeir hafa. Ég er ekkert að mæla með því að verið sé að lána vonlausum fyrirtækjum, ég er ekki að mæla með því. En ég vil að það verði skoðað og þegar menn ræða um þessi mál að þeir kynni sér möguleikana, þeir ræði þetta af þekkingu og láti ekki lepja í sig einhverja vitleysu eins og hæstv. fjmrh. gerði hér áðan. Auðvitað getur öllum skjátlast og ég ætlast til þess að fjmrh. viðurkenni það, a.m.k. eftir að hann er búinn að skoða þetta með eigin augum og sannfærast um að allt sem ég hef sagt er rétt, allt saman. Ég verð t.d. að reyna að útvega honum bita af reyktum laxi og vita hvort honum finnst það ekki vera sæmileg vara. A.m.k. þykir útlendingunum það. Í þessari stöð er líka verið að framleiða bleikju sem þykir alveg frábær. Það fást 8 -- 9 dollarar fyrir hvert kg. Eigum við að hætta svona starfsemi? Eigum við að láta hæstv. iðnrh. halda áfram sínu tafli, sínum blekkingaleik í sambandi við álbræðslu en líta ekki okkur svolítið nær?
Og hvernig er það með loðdýrin, hæstv. ráðherra, sem var hvíslað að fólki þegar ríkisábyrgðin kom á þeim lánum að það mundi verða afskrifað? Í útvarpsþætti á sunnudagsmorguninn sagði formaður loðdýraræktarfélagsins á Suðurlandi að það hefði verið hvíslað í eyru þeirra að þetta yrði afskrifað. En hver var svo raunin? Það er verið að eyðileggja á þriðja hundrað fjölskyldur og það er verið að svíkja það sem var lofað. Öll þau mál eru í svo miklum ólestri á öllum stöðum að það er ekki hægt að lýsa því og það er ekki hægt að lýsa því hvernig er búið að fara með þessar fjölskyldur. En ég fæ vonandi tækifæri til að ræða það síðar.
Ég sé ástæðu til þess, vegna þessarar umræðu hér, að endurtaka þakkir mínar til stjórnar Byggðastofnunar, að hún skyldi ein hafa vit á því að láta reyna á það hvort það væri hægt með góðu móti að koma upp fiskeldisstöð á Íslandi. Og þær þyrfti að reisa miklu fleiri þar sem aðstæður eru fyrir hendi.
Ég heyri það að hæstv. forseta finnst þessi umræða vera orðin æðilöng og það er rétt. En hér er um að ræða líklega eitt mikilvægasta mál og möguleika sem við höfum, ekki einungis með lax og bleikju heldur sandhverfu og ýmsar tegundir sem hv. 1. flm. taldi upp hér áðan og ég vil ekki eyða tíma í að ræða það.
Að svo mæltu ætla ég að ljúka máli mínu en segi við ráðherrann: Velkominn norður, komdu í skóla í eina 2 -- 3 daga og þá skilurðu kannski hvaða möguleikar eru í fiskeldi á Íslandi.