Frv. um skipan prestakalla og prófastsdæma
Miðvikudaginn 06. mars 1991


     Halldór Blöndal :
    Herra forseti. Í fyrsta lagi hefur það væntanlega ekki áhrif á forsetaúrskurð eða störf nefndarinnar hvort mál séu úr Ed. eða Nd. Það sem ég er að tala um er að hér er hreyft frv. um skipan prestakalla og prófastsdæma. Í nefndinni er mál sem ég er flm. að um sama efni og eftir því sem forseti, sem á sæti í allshn., hefur upplýst hefur ekki verið tekið tillit til þess frv. sem ég flutti og það er látið liggja í nefndinni.
    Ég geri ráð fyrir því að ég verði að óska eftir því að ég fái svigrúm til þess að kynna mér þau gögn sem liggja fyrir í allshn. um það frv. sem ég hef flutt og mun setja mig í samband við starfsmenn nefndarinnar til að fá upplýsingar um hvernig því frv. hefur reitt af í nefndinni. Ég geri ráð fyrir því að nefndin hafi fjallað um mitt frv. samhliða því sem hér liggur fyrir þar sem þau varða sama efni. Af þeim sökum mun ég fara fram á það að þetta frv. doki við fram yfir helgi, þannig að mér gefist svigrúm til að taka efnislega afstöðu til málsins.