Virðisaukaskattur
Miðvikudaginn 06. mars 1991


     Halldór Blöndal :
    Herra forseti. Ég vil lýsa sérstakri ánægju minni og þakklæti yfir því að þetta litla frv. skuli ná fram að ganga. Mér er kunnugt um það að hreyfingar sem oft hafa hlaupið undir bagga í litlum málum bíða eftir því að sjá hver afdrif þessa frv. verða hér í þinginu og hafa í huga að beita sér fyrir söfnun vegna sjóndapra ef frv. nær fram að ganga. Ég vil sem sagt þakka fyrir þessa afgreiðslu með von um að Nd. bregðist jafn vel við.