Halldór Blöndal (um þingsköp) :
Herra forseti. Það er viðtekin venja ef stjfrv. ber á góma að ráðherrar eru víðs fjarri. Nú höfum við þingmenn verið látnir bíða í 20 -- 25 mínútur eftir að forsrh. geri vart við sig. Við höfum ekki fengið neinar upplýsingar um það einu sinni hvort honum sé kunnugt um að hans sé saknað. Honum er sennilega ekki kunnugt um að þetta frv. er komið úr nefnd.
Ég vil mælast til þess að þetta frv. verði tekið af dagskrá þessa fundar og þingmönnum verði ekki haldið hér eins og einhverjum litlum strákum sem eiga að bíða eftir ráðherra sem ekki gegnir sinni þingskyldu. Ég óska eftir því að forseti sýni þinginu þá virðingu að gefa þingmönnum tækifæri til þess að snúa sér að öðrum störfum. Þingflokksfundir eiga að byrja eftir 35 mínútur. Hæstv. forseti hefur vanrækt skyldur sínar. Ég óska eftir því að þessum fundi verði slitið þannig að þingmenn geti gengið að öðrum verkum.