Frsm. allshn. (Guðmundur Ágústsson) :
Virðulegi forseti. Vegna fyrirspurnar hv. 2. þm. Norðurl. e. um kostnaðinn vegna þessa frv. sem hér er til umræðu skal það upplýst að í grg. frv. koma fram ýmis atriði varðandi frv. Ég vil benda hv. þm. á að lesa grg. þar sem þar er tekið á þessum málum í heild sinni.
Varðandi það sem fram kom hjá hv. þm. um að bæði þessi mál ættu að vera í sömu nefndinni, málið sem var vísað til fjh. - og viðskn. og þetta mál um Byggðastofnun og vísað var til allshn., þá vil ég benda hv. þm. á að þegar málin voru hér til afgreiðslu, þá var sá háttur viðhafður að vísa öðru málinu til allshn. og hinu til fjh.- og viðskn. Enda finnst mér það mjög eðlilegt þar sem það mál sem vísað var til fjh. - og viðskn. fjallar um efnahagsaðgerðir og fjh. - og viðskn. fjallaði um það frv. á sínum tíma. Það frv. sem hér um ræðir fjallar um Byggðastofnun og á með réttu að heyra undir allshn.