Byggðastofnun
Miðvikudaginn 06. mars 1991


     Halldór Blöndal :
    Herra forseti. Það liggur fyrir samkvæmt ummælum forsrh. að hann leggur ekki áherslu á það að þetta mál verði afgreitt hér í deildinni í dag. Hann hefur sagt það úr þessum ræðustól að hann hafi ekki verið hér mættur vegna þess að hann hafi ekki haft vitneskju um að málið yrði tekið fyrir í dag. Jafnframt liggur það fyrir að hann hefur boðið það fram að mat Fjárlaga - og hagsýslustofnunarinnar á kostnaði sem þetta frv. hefði í för með sér fyrir ríkissjóð yrði kynnt deildarmönnum við 3. umr. eða í fjh. - og viðskn. Nd., segir hæstv. forsrh.
    Ég vil minna hæstv. forseta á 19. gr. laga um ríkisreikning o.fl., frá 2. júní 1985:
    ,,Við lögin bætist ný grein sem verði 77. gr. og breytist röð annarra greina í samræmi við það.`` Þetta er brtt. ,,Greinin orðist svo:
    Fjárlaga - og hagsýslustofnun skal annast hagsýslustarfsemi fyrir ríkisbúskapinn í því skyni að auka á hagkvæmni og ráðdeild í ríkisbúskapnum og í meðferð opinberra fjármuna. Meðal þess háttar verkefna Fjárlaga - og hagsýslustofnunar skulu vera, eftir því sem nánar verður ákveðið í reglugerð:
    1. Mat á fyrirhuguðum ríkisframkvæmdum með tilliti til arðsemi, kostnaðar, nytja og þjóðfélagslegs gildis.
    2. Mat á kostnaði sem frumvörp hafa í för með sér fyrir ríkissjóð. Skal slíkt mat liggja fyrir áður en ákvarðanir eru teknar, enda sé því skilað til þingnefndar á tilskildum tíma.
    3. Athuganir á hagkvæmni í rekstri ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja í því skyni að bæta rekstur og draga úr útgjöldum.
    4. Athuganir á hagræðingu í starfsemi ríkisstofnana og fyrirtækja og í samskiptum einstaklinga og fyrirtækja við ríkið.
    Þessi verkefni skal Fjárlaga - og hagsýslustofnun leysa í samráði við hlutaðeigandi ráðuneyti og fjvn. Alþingis.``
    Svo mörg eru þau orð. Nú á forseti deildarinnar sæti í allshn. Ekki svo? Mig minnti að svo væri, en svo er ekki. Ég geri ráð fyrir því að forseti sé mér sammála um að ekki sé nema tvennt að gera fyrir Alþingi. Annaðhvort er að nema þessi ákvæði úr lögum eða fara eftir þeim. Ég get ekki séð að Alþingi geti sett sjálfu sér starfsreglur með þessum hætti upp á punt, en látið svo undir höfuð leggjast að fara eftir þeim.
    Ég veit ekki hvort formaður allshn. er hér inni. Hann er svolítið hvikull. Formaður allshn. varði sig áðan með því að í athugasemdum við einstakar greinar þessa frv. væri að finna upplýsingar um það hvaða kostnað frv. mundi hafa í för með sér. Ég gæti, herra forseti, lesið alla grg. upp til þess að sýna fram á að þar finnast engar slíkar upplýsingar. Nú vil ég biðja formann nefndarinnar að upplýsa deildina um hvar þessar upplýsingar sé að finna. Ef svo skyldi fara að hann finni ekki upplýsingarnar, þá vil ég ráðleggja honum að taka undir ummæli mín og fara fram á það

við forseta deildarinnar að þetta mál verði tekið út af dagskrá og nefndin fái þær upplýsingar sem hún lögum samkvæmt á að fá.

    Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð. Þetta frv., eins og það er lagt hér fram, er auðvitað sýndarfrv. Það liggur enginn vilji á bak við það að beita þeim heimildum sem þetta lagafrv. felur í sér á þessu ári. Það er skýrt tekið fram í þeirri nefnd sem samdi frv. að það yrði að taka tillit til ákvæðanna við gerð næstu fjárlaga, þ.e. fyrir árið 1991. Það hefur ekki verið gert. Hér er því um sýndarfrv. að ræða. En verst þykir mér ef hæstv. forseti með stjórn sinni á deildinni, með því að ætla að knýja þetta mál í gegn nú, veldur því að óhjákvæmilegt verður að flytja lagafrv. um það að 77. gr. laganna um ríkisbúskap og fleira verði felld úr gildi þar sem forsetar Alþingis sjá ekki ástæðu til að fylgja þeim lögum.