Byggðastofnun
Miðvikudaginn 06. mars 1991


     Halldór Blöndal :
    Herra forseti. Ég er mjög þakklátur fyrir það að þessar upplýsingar skuli verða látnar í té og get fallist á að málið fari til Nd. á þeim forsendum að upplýsingar muni berast í tæka tíð til þess að fjh. - og viðskn. Nd., væntanlega, fái upplýsingar um málið því að auðvitað er það eðlilegt að sama þingnefnd fjalli um þau frv. sem varða sömu stofnun.