Frsm. 2. minni hl. allshn. (Salome Þorkelsdóttir) :
Hæstv. forseti. Það eru smáathugasemdir við ræðu hv. 5. þm. Reykv. hér áðan. Það er misskilningur hjá honum að það sé nauðsynlegt að halda sig við þessa heimild í fjárlögum sem skilyrðir lánsheimild með happdrætti eða einhverjum öðrum tekjuöflunarleiðum. Ef sett er inn í lánsfjárlögin að það megi taka slíkt lán, þá skiptir hitt engu máli. Þetta er mikill misskilningur hjá honum. Það eyðileggur ekki málið.
Hv. þm. sagðist óttast að ef frv. yrði fellt, þá yrði ekki keypt þyrla. Nú vil ég benda honum á að við höfum lýst því yfir að þó að við getum ekki stutt þessa hugmynd, af því að við höfum ekki trú á því að slíkt sjóðshappdrætti muni afla svo mikilla tekna að hægt verði að vinda sér í að kaupa þessa þyrlu strax, þá ætlum við ekki að greiða atkvæði á móti frv. Við munum sitja hjá við afgreiðslu málsins vegna þess að við viljum freista þess að ná fram skynsamlegri lausn á þessu máli með því að setja í lánsfjárlögin heimild um að taka þetta lán. Það held ég að skipti öllu máli.
Mér þykir leitt að ekki skuli hafa náðst samstaða um þetta mál, en ég næ því ekki hvaða raunhæfa aðgerð það er að setja á laggirnar slíkt sjóðshappdrætti þegar það er engin vitneskja um hvaða tekjur það fær. Það hefur aldrei verið nefnd nokkur einasta tala um það. Það er tekið fram í upphaflega frv. sem ráðherra lagði fram að það sé ekki hægt að gera sér grein fyrir því t.d. hvaða vinningsmöguleikar verði í slíku happdrætti. Það er sérstaklega tekið fram og þá náttúrlega um leið hvaða tekjur slíkt happdrætti gefur. Ég sný því ekkert aftur með það að þarna er einungis verið að skjóta sér á bak við þetta happdrætti. Eina raunhæfa leiðin er að vinda sér í að semja um að kaupa þessa þyrlu og gera það strax og taka til þess þau lán sem þarf í gegnum lánsfjárlagafrv.