Eyjólfur Konráð Jónsson :
    Herra forseti. Þessi síðasta athugasemd var nú heldur lítilvæg. Auðvitað er hægt að semja um í hinum mikla heimsbisniss alla mögulega kosti í þessu efni. Það er hægt að byrja að greiða inn á vélina meira að segja áður en hafin er framleiðsla á henni o.s.frv. Það hefur verið upplýst að í einu tilfelli a.m.k. hafi vél verið keypt gegn staðgreiðslu. Við vitum hins vegar að leigukaup svonefnd eru mjög algeng í þessari grein viðskipta, flugvélakaupum, kannski til 10 -- 15 ára, menn greiða á þessu árabili upp heildarupphæðina. En einmitt með þeim rökum sem hv. þm. var að rekja hér áðan má segja að það sé ágætt að hafa heimildina víða til þess að ná hagstæðustum kjörum sem um er að ræða, kannski að borga lítið, kannski að borga 500 millj., kannski eitthvað meira ef hún kostar meira. Það er um að gera að hafa þetta með þessum hætti að það sé heimild til ríkisins til að ganga til samninga um þyrluna og jafnvel áður en byrjað er að framleiða hana, en reyna að fá hana sem allra, allra fyrst og hafa nógu rúmar heimildir til þess að ná hagstæðum viðskiptum.